Jólablað félagsins Stjarnan í austri. - 24.12.1917, Síða 16
aðhyllist. All og sumt sem krafist verður af félagsmönnum
»Stjörnunnar í austri« er, að þeir samþykki þessar sex
grundvallarreglur, enda eru þær hin einustu bönd sem
tengja alla einstaklinga bræðralagsins saman í öllum löndum.
I3ar næst ber þess að gæta, að samfara hinu fullkomna
trúar- og skoðanafrelsi, sem þegar hefur verið tekið fram,
er alt hið ytra skipulag bræðralagsins frjálst og óháð.
Félagsmenn vorir i hverju Iandi eru sérstök og sjálfstæð
deild út af fyrir sig, og hafa fulltrúa og ritara, sem ráða
hvernig haga skuli slarfsemi félagsins út á við, eftir því sem
þeir sjá að hezt muni henta í því og því landi eða bygðar-
lagi, þar sem þeir eiga heima. I’að hlýtur lika að liggja
í augum uppi, að hver félagsdeild verður að hafa frjálsar
hendur, þar sem félagið í heild sinni hlýtur að eiga við svo
margvisleg skilyrði og erfiðleika að búa. Hvert land hefur
sin trúarbrögð og sín vandamál. Þar af leiðandi þarf sina
hverja aðferð og úrræði í hverju landi. ()g þegar hinn mikli
leiðtogi kemur, mun hann taka tillit til þess. Hann mun því
ekki fræða alla á einn veg, því þótt fræðsluatriði hans verði
alstaðar ein og hin sömu, þá kemst hann ekki hjá því að
sníða hinn ytri húning þeirra eftir hinum ýmsu þörfum og
þroskastigum þeirra, sem hann fræðir í það og það skifti.
Þar af leiðandi er æskilegt að fylgja hinni sömu reglu i
félagsskap þeim, sem leitast við að undirbúa komu lians.
Hverjum félagsmanni vorum verður að vera það Ijóst, að
honum er alveg frjálst að undirbúa komu leiðtogans með
hverjum þeim hætti, sem hann álítur æskilegan, svo framar-
lega sem hann kemur ekki i bága við hinar sex grund-
vallarreglur bræðralagsins.
En þá er eftir að athuga hvernig félagsskapur með svo
miklu frjálsræði og óháðum félagsdeildum getur gert sér
H