Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Side 17

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Side 17
iðunn| Heinrich Heine: Keisaraliðarnir. 255 Þar fengu þeir báðir þá fregn, þvi ver, að Frakkland reyrt væri böndum; klofinn og rofinn þess kappa her, en keisarinn tekinn höndum. Þá grétu þeir báðir og börmuðu sér, því brjóslin skar raunafárið. Og annar mælti: æ, aumum mér, hve ýfist mitt gamla sárið. Hinn svarar: Ljóðinu er lokið þá, mér Ijúft væri dauðann að eygja, en konan og börnin mín bíða smá, þau brestur ef ég skyldi deyja. Hvað varðar um lljóðs og barna böl, er bugar oss voðinn strangi; lát liungrið þau reka á vonarvöl; minn voldugi keisari’ er fangi. Æ, bróðir, veittu mér bænina þá, að banastríðinu hörðu, þá hafðu líkið milt héðan frá og heim í franska jörðu. Þeim heiðurskrossi með hárauð bönd á hjarta mitt komið verði, og byssuna gef mér í hægri hönd, við hlið mína gyrtu sverði. Svo vil ég hlustandi hafa töf, sem hervörður dáðrakkur bíða, unz lijálmaðir riddarar liart um gröf hneggjandi fákum ríða. L

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.