Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Page 18
256
Þorleifur H. Bjarnason:
[ IÐUNN
I3á keisarinn hleypir með hófaglam,
og hjaltarnir fylkingar ryðja,
þá veð ég úr gröfinni vopnaður fram
til valda minn keisara að styðja.
[Eyjólfur Melan þýddi.]
Yilhjálmur II. Þýzkalandskeisari
og tildrög ófriðarins mikla.
Eílir
Þorleif H. Bjarnason.
Síðan Vilhjálmur 2. keisari á Þýzkalandi og kon-
ungur á Prússlandi kom til j-íkis 15. júní 1888, hafa
dómar manna urn hann skifzt mjög í tvö horn:
sumir telja liann einhvern hinn mikilhæfasta og at-
kvæðamesta þjóðhöfðingja, sem nú er uppi; liinsvegar
þykjast sumir — og þeir eru nú á ófriðartímunum
bj7sna margir — íinna fátt nýtt í fari hans og úthúða
honum og stjórnarráðstöfunum hans á allar lundir.
í grein þessari, sem er brot úr ritgerð um keisara og
sljórnarferil hans, skal aðallega vikið að stefnu hans
í utanríkismálunum og viðskiftum hans við Frakka,
Breta og Rússa fram að ófriðnum mikla.
Þegar Vilhjálmur keisari 2. settist að ríkjum, fór
hann í boðskap sinum til ríkisþingsins svofeldum
orðum um stjórnarstefnu sína í utanríkismálum: »Ég
er fastráðinn í að lifa í sátl við alla menn að svo
miklu leyti, sem ég má ráða .. . Her vor á að treysta