Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Page 25

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Page 25
IÐUNN| Vilhjálmur II. fýzkalandskeisari. 263 1912 470,4 miljónir marka til flotans. Til nýlendn- anna liefir ríkið orðið að leggja af mörkum stórfé, sem skiftir hundruðum miijónum marka, fyrir utan alt það fé, er hin miklu nýlendufélög hafa lagt ný- lendunum. Árið 1897 notuðu þjóðverjar víg nokkurra þýzkra trúboða í Kína til þess að komast yfir höfn- ina Iviautschou og taka á leigu hérað í kringum hana um 3—400 kmr að viðáltu. Fyrir framúrskar- andi dugnað Þjóðverja eildist njdenda þessi stórmikið á skömmum tíma. Var því engin furða, þó allur landslýður harmaði það mjög, er Japanar tóku hana á fyrsta ári heimsstyrjaldarinnar miklu. Þótt Bulow gætti bæði sem utanríkisráðherra og ríkiskanzlari allrar varkárni í viðskiftum þýzka rík- isins við hin stórveldin, meðan það var að koma sér upp flota, þá kom það brátt í ljós, að þeim var sumum liverjum litið getið um hina nýju stefnu. Sennilega hafa ræður keisara um flotann og siglinga- nauðsyn Þjóðverja og ýmis stóryrði, sem koma þar fyrir, svo sem »framtíð vor er á sænum«, »þríforkur- inn (forræðið á sænum) verður að komast í vorar hendur«, og »hinn þýzki andi vill drotna yfir heim- inum«, átt nokkurn þátt i að ala á tortrygni þeirra siglinga-stórveldanna og þá einkum Bretlands. Skal þessu næst vikið nokkrum orðum að því, hvað Vest- urþjóðunum, Bretum og Frökkum, og Þjóðverjum heíir farið á milli fram til styrjaldarinnar miklu. Sem dótturson Victoriu Bretadrotningar og auga- steinn hennar var Vilhjálmur keisari öðrum fremur vel til þess fallinn að bera sáttarorð milli Þjóðverja og Breta. Fyrstu stjórnarár sín virðist keisara hafa verið mjög um það hugað, að gott samkomulag héld- *st með Þjzkalandi og Bretlandi. Hann kom á ári hverju til Bretlands að sækja heim ættingja sína og vera viðstaddur við kappsiglingarnar í Cowes og sparaði þá ekki að láta þess getið í ýmsum ræðum,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.