Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Page 29
IÐUNNJ
Vilhjálmur II. Pýzkalandskeisari.
267
því nær eingöngu fylgjandi Búum, en stjórnin gætti
vinsamlegs hlutlej'sis og vildi ekki, að því er keis-
ara sagðist síðar frá, eiga neinn þátt í því að skakka
leikinn og binda enda á ófriðinn.1) En samt sem
áður fóru fáleikar með Bretum og Þjóðverjum heldur
vaxandi. Og mun það hafa verið því að kenna, að
ekkert varð úr samkomulagsumleitunum þeim, sem
gerðar voru um aldamótin að ósk keisara og Búlows
kanzlara hans og að ráði mikilsmegandi brezkra
stjórnmálamanna til þess að koma á sambandi með
Bretlandi og þýzkalandi. Ágreiningsefnunum þeirra í
milli fjölgaði einatt, og árásir þýzkra blaða á Kil-
chener, yíirliershöfðingja Breta í Suðurafríku, og
sögur þær, er þau fluttu af harðýðgi hans við Búa,
vöktu mikinn úlfaþyt á Bretlandi. Þegar því Victoría
Bretadrotning andaðist 1901 og Játvarður 7., sonur
hennar, tók við ríkjum, er var enginn vin Þjóðverja
né Vilhjálms keisara frænda síns, töldu ýmsir útséð
um, að sættir og samkomulag lækist fyrst um sinn
með þjóðum þessum. Víst er um það, að Bretar létu
af sambandsumleilunum við Þjóðverja og tóku að
bindast samtökum (ententej við önnur ríki í
því skyni að tryggja sig gegn ófriði af hálfu
Þjóðverja, en jafnframt höfðu þeir mikinn við-
búnað -á sjó. Hafa sumir þýzkir stjórnmálamenn og
rithöfundar, svo sem Bulow fursti og Maximilian
Harden, talið Játvarð 7. frumkvöðul þessara sam-
laka Breta við önnur ríki til þess að »einangra«
1) Sbr. grein með fyrirsögninni »Tlie German Emperor antl Englandtí,
'er birtist i Lundúnablaðinu »Daily Telegraphtt 28. október 1908. Grein
bessi kallast fréttaviðtal fyrv. brezks stjórnarerindreka við keisara. Er
Þar tekið fram, að liann kjósi að lifa i friði við Bretland, en allur porri
M’zku þjóðarinnar sé þvi mótfallinn. Hefði keisari sýnt það i verki, að
^ann væri vinur Breta, en þeir væri »liræddir, liræddir eins og liérar i
niarzmánuði«. Grein þessi vakti mikla eftirtekt á Bretlandi og Pýzka-
^andi. Hún bakaði keisara i svip mikla óvild lijá þegnum sinum og
*Hailtist illa fyrir lijá Bretuin, Frökkum og Hússum og gaf tilefni til þesst
að Búlow vék úr kanzlarasessinum.