Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Qupperneq 31
JÐUNN] Vilhjálmur II. Pýzkalandskeisari. 269
Esbjerg og við Aalbækflóa á Jótlandsskaga; skj'ldu
þeir síðan halda suður Slésvík og spilla Kílarskurð-
inum.1)
Fyrstu stjórnarár Vilhjálms keisara var samkomu-
iagið með Frökkum þolanlegt, enda gerði keisari sér
far um að efla samlyndi milli þeirra og var vel til
nokkurra málsmetandi frakkneskra manna, er voru
gestir hans eða sóttu fund hans. Skal hér að eins
bent á lýsing hins merka frakkneska stjórnmála-
manns Jules Simon á keisara og ummæli þau, er
hann hefir eftir honum úr samræðu, er þeir áttu í
Berlín í marzmánuði 1890. Fegar Jules Simon spurði
keisara, hvernig honum segði hugur um ófrið með
Frökkum og Þjóðverjum, mælti liann: »Ég segi yður
það hreinskilnislega — her yðar hefir tekið sér fram.
Ef hann — sem ég tel óhugsandi — ætti að etja við
hinn þjrzka her á vígvelli, gæti enginn sagt fyrir,
hver úrslitin yrði. Fyrir því tel ég livern þann mann
heimskingja eða glæjramann, er sigaði þessum tveim
þjóðurn út í ófrið.« Þó að stundum risi úfar á með
þeim þessi ár, svo sem út af viðtökum þeim, er
móðir keisara fékk í París 1891, þá jafnaðist ósam-
komulagið von bráðar.
Til þess að sefa Fraklca og gera þá afhuga Elsass-
Lothringen hafði Bismarck á sinni tíð beint huga
þeirra að því, að auka nýlendur sínar í öðrum heims-
álfum og meira að segja stutt þá viðleitni þeirra.
Frakkar höfðu fylgt því ráði djrggilega og aukið árin
1881—86 fyrir forgöngu sljórnarskörungsins Ferry
nýlendur sínar að miklum mun bæði norðan og
"vestan í Afríku og á Austurindlandi. Síðan bazt Del-
cassé, er áður hefir verið nefndur og var utanríkis-
ráðherra Frakka frá 1898—1905 fyrir því, að auka
yfirráð Frakka í Marokko og jafna misklíð þá, ér
í) Johs. Uindbæk: Forspillct til Verdenskrigen, Kh. 1917. 135—.'tG bls.