Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Side 33
IÐUNN]
Vilhjálmur II. Pýzkalandskeisari.
271
og Delcassé varð að fara frá. Eftir tillögu þýzku
sljórnarinnar var málið lagt undir úrskurð allsherjar
fundar, er stórveldi öll hér í álfu, nokkur hinna
smærri ríkja og Bandaríkin í Ameríku skyldu kjósa
fulltrúa til.
Fundur þessi var haldinn í Algeciras á Spáni og
hófst í janúar 1906. Aðalmálspartarnir, Þjóðverjar og
Frakkar, höfðu þegar áður komið sér saman um
undirstöðuatriðin. Niðurstaðan varð sú, að soldán
skyldi halda ríki sínu og fullveldi óskertu,
og öllum þjóðum skyldi heimilt að eiga verzl-
unarviðskifti við Marokko, en hinsvegar varð
Þýzkaland að gangast undir það, að Frakkar hefði
þar nokkurskonar forræði. Meiri hluti fulltrú-
anna óg þar á meðal ítalir, bandamenn Þjóðverja,
fylgdu Frökkum að málum og náðu því ýmsar til-
lögur þeirra um nauðsynlegar umbætur í Marokko
fram að ganga, og þeir réðu mestu um, hvernig
þeim var komið í kring.
Þjóðverjar undu illa þessum málalyktum og töldu
keisara og stjórnarerindrek^ hans eiga nokkra sök
á, að svo liefði farið. Urðu úrslit þessi ekki. til að
bæta samkomulagið með þeim og Frökkum. En enn
þyngri hug háru samt margir Þjóðverjar, einkum
þeir sem Slór-Þjóðverjar hafa verið kallaðir, til Breta
°g sögðu að auðsætt væri, að þeir og stjórn þeirra
þéldi uppteknum hætti, að »einangra« Þjóðverja og
^eSgjast móti hagsmunum þeirra.
Þó að Delcassé hefði orðið að víkja úr sessi, varð
engin breyting á stjórnmálasteínu Frakka í Marokko.
\ eir notuðu sem fyr hvert færi til þess að færa þar
ut kvíarnar og treysta yílrráð sín, en því var auð-
yitað iiia tekið á Þýzkalandi. Á hinn bóginn efldu
rJjóðverjar alt hvað þeir gátu viðskifti sín við Marokko.
Að keisari haíi þó engan veginn verið úrkula vonar
Uln> að fullar sættir gæti tekist með Frökkum og