Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Qupperneq 61
JÐUNNj
Woodrow Wilson.
299
Vs miljón og má auka hann upp í 1 miljón, ef þörf
gerist. Her þessi er nú æfður í risavöxnum herbúð-
um, er líkjast borgum, auk þeirra 45,000 ungra
manna, er gerst hafa sjálfboðaliðar. 22 þús. flugvéla
er verið að smíða og æfa 100 þús. flugmanna. Og
auk alls þessa er hergagna-framleiðsla rekin i stærri
stíl en nokkru sinni áður, en til þessa alls varið fjár-
Upphæðum, er manni sundlar við. Alls hafa verið
veitt 3,400,000,000 sterlingspunda til stríðsins og
gerðir samningar um önnur 500,000,000 sterl.pund,
og þar af að eins 200,000,000 til venjulegra útgjalda.
Og í öllu þessu hefir Wilson og enginn annar verið
lífið og sálin. Vitanlega hefir hann marga ágæta hjálp-
armenn og meðal annara ríkisbrytann, Mr. Hoover,
sem vér fslendingar eins og aðrar hlutlausar þjóðir
«igum mest undir um matarkaup. Þetta er talinn
mesti viðskiftasnillingur Ameríkumanna og stóð lengi
fyrir hjálparnefnd þeirri, er útvega átti Belgum mat-
vseli; en nú hefir Wilson tekið hann í sína þjónustu
°g ríkisins og sér ekki eftir. Fátt hefir farið í handa-
skolum, en flest ágætlega af hendi Ieyst, og Wilson
hefir sýnt, að hann er öllu þessu vaxinn. Enda eru
°ú jafnt fjandmenn hans sem vinir farnir að dást að
fionum, þótt mörgum, sem ekki skildu rás viðburð-
^nna, þætti kynlegt, hversu skjótt hann, friðarforset-
u,n, skyldi verða að einum aðalforkólfi ófriðarins.
,n þrátt fyrir megna mótspyrnu hefir hann haft alt
s,tt fram, og þótt Bandaríkjamenn fagni nú engan
'eginn ófriðnum, eru þeir húnir að sætta sig við
,:,nn. Jafnvel friðarpostulinn Bryan hét þegar í sept-
ember f. á. fylgi sínu; og síðan má heita að allir,
sem eru ekki beint á bandi Þjóðverja þar í landi,
ylgi forseta sínum einhuga. Og það er eindreginn
asetningur þeirra að hætta ekki fyr en yfir lýkur.
f ótt mörgum þyki þetta nú gott bæði þar í álfu
°8 annarsstaðar og menn dáist nú orðið að liam-