Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Side 62
300
Carl Snoilsky:
[ IÐUNN
hleypunni Wilson, sem hikaði svo lengi og svo mjög,
að hann ávann sér ámælisorð fyrir, þá er það rauna-
lega við þetta, að þessi þátttaka Ameríkumanna í
ófriðnum lengir hann að líkindum og allar hörm-
ungarnar, sem af honum leiðir, um ófyrirsjáanlegan
tíma, ef ekki skyldi nú alveg kasta tólfunum til
annarar hvorrar hliðar á sjálfum vigvöllunum, og
þá ef til vill nú með vorinu, áður en aðalhersveitir
Bandaríkjanna eru komnar þar á vettvang.
|Aö mcstu leyti eftir: The Xineteenth Centunj and After, nóv. 1917.)
Ég kem með vínber —
Eftir
Carl Snoilsky greifa.
Úr »11 a 1 i e n s k a b i 1 d e r « (1861),
Kg kem með vínber, ég kem með rósir,
ég kem með glitrandi, suðrænt vín;
þér sveinar státnir og svannar Ijósir,
ég slæ þá glymjandi tambúrín!
Eg fylla’ ei vil ykkur fríska sveina
með fóstrum tómum úr draumaheim;
og eitt það syng ég við ungu meyna,
sem eg hef lifað með henni og þeim.
Kg á ei tal við þá ýgldu slána,
sem eru’ of hygnir og reigja sig;
en — hjörtun ungu með lieilu þrána,
ég hygg að þið munið skilja mig.