Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Blaðsíða 63
I13UNN]
Kg kem með vínber
301
Kom, vaski sveinninn með vöðvann spenta
og væna stúlkan svo hýr á brá;
kom þú til Tífur og kom til Brenta,
ef kuldinn háir þér norður frá.
Sjá, Valland1) heitir það Eden unga,
þar aldrei sumar og gleði þver;
og enginn kerúb með kesju þunga
þá kátu syndara þaðan ber.
Já, lát oss fara’ yfir fjöllin háu
og flýta’ oss niður í sælu þá;
til Cómó-hæða að kvöldi náum
og hvílum okkur við vötnin blá.
Og í Mílanó rétt ögn við bíðum
— heyr orgelþytinn og bænasuð! —
en við Magenta við messu hlýðum
og miklum þar okkar frelsis guð.
Barn, lít þar dæmið hið dýrðarríka,
þótt drypi sorgin við Brenta’ í stað,
sjá, frjálst er Mailand og Feney líka,
— við fögru blóði þeir keyptu það.
Sjá fagra Róm, hina fornu móður!
en far ei rústirnar kaldar um;
að bráðum risi, þess bið þú hljóður,
þar betra, nýtt Capitolium.
Af gamalrún hinna gullnu kera
hvað getur lært þú, þótt rýnir í?
En mækir kempunnar frá Caprera")
niun kunna’ að þylja þér fræði ný.
Íí í ' e': f liiliu i nútiðar-skáldskap, þótt Frakklnnd liéti svo á miðöldum.
c.: Garibnldi’s.