Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Side 80

Iðunn : nýr flokkur - 01.04.1918, Side 80
318 Lyga-Mörður. [IÐUNN peirra, Flosi og Mörður og margt fleira fyrirmanna sitja að boði. Leikmótið í nánd við rjóðrið i 'skóginum á að sýna, hversu bjáit hefði getað orðið yíir lífinu liér á landi, ef menn hefðu kunnað að lifa því i sátt og samlyndi. En Níð- höggur rógs og lyga, Mörður, er nú þegar seztur að verki og farinn að sá því úlfúðarsæði, sem á eftir að uppræta allan þenna fagra gróður. Fer liann nú að koma þeirri hugsun inn hjá Skarphéðni, að faðir hans hafi sett hann sjálfan hjá með því að útvega Höskuldi goðorðið og ala á valdafýsn hans. En Forkötlu grunar, hvað undir muni búa og gefur hún lionum því gætur. Og enn er Mörður ekki svo langt leiddur, að ekki mætti snúa honum til betri vegar, eins og sjá má af orðum þeim, er hann mælir til konu sinnar: »Ef þú hefðir ást á mér, gætu kossar þínir hrakið hverja illa hugsun úr hjarta minu«. En hún á bágt með að elska Mörð, því að »það er eríitt að unna svo margleitum manni« (Det er vanskeligt at elske en Mand, som har inange 'Ansigter). Fá ilskast Mörður og honum dettur djöfullegt ráð í hug til þess að egna þá saman Höskuld og Skarp- héðinn, að Skarphéðinn bjóði Höskuldi fóstbræðralag. Fað getur Höskuldur auðvitað ekki þegið, því að Mörður ætlar að sjá um, að hann minnist þess, að Skarphéðinn varð banamaöur föður hans. »Og blindni og hatur héldu ráð« —; en nú kemur hinn að- iljinn, ímynd friðarins og föðurlandsástarinnar, Njáll, fram á sjónarsviðið. Hann lieldur nú, áður en hann kveður þau Höskuld og Hildigunni og býst til heimferðar, ræðu þá yfir öllum veizlugestunum, sem á að lýsa innræti hans og fram- ferði og gerir hann að sannnefndum friðarhöfðingja. Par eð nú ræða þessi cr svo fögur og virðist þar að auki runnin undan lijartarótum skáldsins sjálfs, get eg ekki staðist að snara henni, þótt ekki sé nema á lélegt íslenzkt mál, því að ekki veit ég, hvernig höf. mundi sjálfur vilja semja hana á íslenzku. Ræða Njáls: — »Þau hin gömlu goðin, sem ég og þessi þjóð hefir trúað á, þeir Oðinn, Pór og Baldur — og öll höldum vér minning þeirra í lieiðri — kendu oss, að hverj- um þeim, er vandur væri að virðing sinni, bæri að hefna hvers þess vígs, er tæki til sjálfs hans eða ættar lians. En hin nýju goðin, sá hinn þríeini guð, sem vér nú tignum,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.