Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1920, Blaðsíða 21
IÐUNN]
Falsfriður.
179
cratic Control hefir afkastað. Hefir það félag starfað
frá öndverðum ófriðnum, þrátt fyrir þá ósegjanlegu
örðugleika, er ritskoðunin og einkum styrjaldarlög-
gjöfin leiddu af sér. Pað er fegursti afspringur póli-
tískrar eriðasnilli, sem ber félag þetta uppi. Það er
úrvalslið enskrar réttlætismeðvitundar, er berst þar
gegn yfirgnæfandi meirihluta. Nafn E. D. Morels er
þar þó langsamlega efst á blaði.
Eins og það, sem með Englendingum telst karl-
mannlegt, birtist hjá þessum alt of fáu mönnum,
birtist það, sem í enskri þjóðarmeðvitund er kven-
legt og brjóstgott í starfsemi annars félags Fight the
famine Council, sem að vísu er ungt, en alt um það
engu síður virðingarvert. Formaður þess er Parmoor
lávarður, sem nú fyrir skemstu stýrði fundi þeim í
London, er mótmælti morðunum í Pinsk. í stjórn fé-
lags þessa eru meðal annars tvær konur.
í einkabréfi frá félagsstjórninni, Bank Cliambers,
329 High Holborn, London, W. C. 2, standa þessi
eftirminnilegu orð: »Vér erum oss þess meðvitandi,
að ef alþýða manna á Englandi hefði glögga lrug-
mynd um, hvað gert er í hennar nafni, og um
bættu þá, sem henni er sjálfri búin og rætur sínar
á að rekja til hungurdauða og atvinnuleysis þess, sem
öú rikir víða í Evrópu, mundi með engu móti unt
að halda hafnbanninu stundu lengur«.
Fara hér á eftir nokkur sýnishorn af opinberum
áskorunum félagsins:
Með hverjum deginum, sem líður, eykst liungursneyðin
i mörgum löndum. Meðan stjórnmálamennirnir eru að
halda ræður í París, deyja menn, konur og börn. Hafn-
banninu er haldið við af pólitískum ástæðum. Sjáið á því,
sem á eftir fer, hvað fram er að fara:
Rúmenía er að leggjast i auðn vegna sultar. Bændurnir
draga fram lífið með því að éta rætur. »Fósturjörð min«,
Segir bréfritari einn, »fer algerlega á mis við föt, fæði og