Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1920, Side 59

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1920, Side 59
IÐUNN ] Sóttarflutningur. 217 vita til að heilbrigður maður hafi gengið með sótt- kveikju í sér eftir taugaveiki eru 70 ár. Hafði sá fengið taugaveiki á barnsaldri, en alla ævi hafði mátt rekja til hans taugaveikisfaraldra, stærri og smærri. í sóttberunum heldur taugaveikissóttkveikjan lið- ast til í gallfærunum, í þörmum og þarmsárum, einkum neðst í mjógirni og ofan til í langa. Á sjúk- lingunum halda sóttkveikjurnar til á þessum stöðum, stundum líka í nýrum. Stafar mest hætta af þeím sóttberum, sem hafa sóttkveikjur í þvagi, en sjaldan á það sér stað, sem betur fer. Gallið er afbragðs gróðrarreitur fyrir sóttkveikjur. Komast þær að lílc- indum þangað með blóðinu, gegn um lifrina. Verið getur og, að sóttkveikjurnar valdi sárum í gallblöðru- vegg, meðan veikin varir, líkt og í þörmum, og eimir þar lengi eftir af. Bólga í gallfærum, sem er tíður kvilli með mönnum, oft viðhaldið af steinum, kem- ur ólagi á gallrásina, veldur þar á stundum eins- konar uppistöðu, en einmitt þessi kvilli gerir sótt- kveikjunum hægara um vik að haldast við þarna en ella myndi. Gallfærasjúkdómar eru miklu tíðari á konum en körlum, og valda því ýms atvik, sem hér verða eigi greind. Reynslan hefir og sýnt, að konur verða miklu oftar sóttberar upp úr taugaveiki en karlar. Það helzt því nær í hendur, hvað gall- færasjúkdómar eru tíðari á konum en körlum og hilt, hvað þær verða oftar sóttberar en þeir. Hlut- fallið er 4 : 1. Það er einnig nokkuð undir aldri komið, hvort menn verða sóttberar að afstaðinni taugaveiki eða eigi. Börn og unglingar verða sjaldan sóttberar um lengri tíma, roskið fólk tillölulega miklu oftar. Veikinni er það búhnykkur, að konur verða oftar sóttberar en karlar. Rær búverka innivið og matselda. Sé kona sóttberi og gæti hún eigi ýtrasta hreinlætis með hendur sínar, þá er hægurinn hjá fyrir sóltkveikjurnar að komast í matinn og úr hon-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.