Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1922, Blaðsíða 127
;iðunn
Trú og sannanir.
285
sjái, að þetta sé ekki bundið við neinn einstakan
miðil né heldur miðilshæíileikann yfirleitt, skal hér
lýst j'msum tilraunum, sem farið hafa fram á síð-
ustu árum og áratugum. Sýna þær betur en nokkuð
annað það, sem ég leyfði inér að fullyrða í upphafi
þessara greina minna, hvað sálarfræðin græðir á
samvizkusamri rannsókn þessara fyrirbrigða, jafnvel
þótt andatrúin finni fullyrðingum sínum engan stað.
Og mun ég þá fyrst lýsa ofnæmi manna í dáleiðslu
og annari leiðslu.
2. Ofnœmi. Rannsöknir Dr. Alrutz
á dáieiðslunni.
í síðasta bindi. »Proceedings« (Vol. XXXII , bls.
151 o. s.) er afarmerkileg grein eftir sænskan vís-
indamann, dr. Sydney Alrutz, lektor í sálarfræði
við hásólann í Uppsölum, um tilraunir á dáleiddum
mönnum, sem hann hefir fengist við f kyrþey síð-
ustu 10 árin. Lýsa þær hinni mestu gjörhygli og
vandvirkni og sýna betur en alt annað, að til muni
vera sérstök tauga- eða sálarorka, sem geti ýmist
orðið ofnæm eða sljóf fyrir utanaðkomandi áhrifum
og geti fluzt um set frá einu skynsviðinu til annars
og magnað stundum aðra líkamshelftina, en stundum
hina. En hvort orka þessi er bundin eða óháð lík-
amanum, hvort hún m. ö. o. geti eða geti ekki lifað
ilikamsdauðann, verður ekkert um sagt að svo stöddu.
Hér er ekki rúm til þess að lýsa tilraunum dr.
Alrutz nákvæmlega, enda þótt grein hans sé ekki
löng, naumar 30 bls.; en meginkjarnanuin úr henni
mælti ef til vill lýsa á þessa leið.
Langt er nú síðan, að menn þóttust hafa fengið
sönnur fyrir því, að unt væri að dáleiða og bæði
að dýpka og létta dáleiðsluna með handstrokum.
Er rétt eins og einhver áhrif streymi út frá dávaldi