Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 6

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 6
164 Sigurður Nordal: IÐUNN II. Höfundur Völuspár hefir verið roskinn maður um 1000. Hann hefir verið spakur maður og mentaður á sinoa tíma vísu, átt kost á að kynnast því, sem bezt hafði verið ort með Norðmönnum og Islendingum Og bezt var hugsað og talað af samtímamönnum hans. Lífsreynsla hans hlýtur að hafa verið mikil og erfið. Sá maður, sem gerir tortímingu og eldskírn ragnaraka að fagnaðarboðskap, hefir einhvern tíma ratað í þær raunir, að honum fanst öll tilveran einskis virði. Enginn getur með vissu gizkað á, hverjar þær raunir hafi verið, en þess er varla fjarri til getið, að hann hafi mist son sinn, líkt og Egill, og þurft að heyja svipað strið til þess að sættast við tilveruna. Hvergi er slík viðkvæmni í Völuspá og þar sem talað er um Baldur, Óðins barn, og harm móðurinnar eftir víg hans. Skáldið hefir alist upp í ríkri heiðinni trú, en þó kynzt kristninni nokkuð á fullorðinsárum. Kristniboð þangbrands, þar sem var boðaður heimsendir upp úr aldamótunum 1000, hefir orðið honum opinberun og bent honum á leið til þess að komast út úr ógöngum þeim, sein heiðin lífsskoðun lenti í. En hann átti Óðni og Ásum of mikið að þakka til þess að varpa hinum forna á- trúnaði fyrir róða. Milli þessara tveggja siða kviknaði innblástur skáldsins. Völuspá er myrkust og um leið djúpsæjust allra íslenzkra fornkvæða, og virðist sem andagift skáldsins hafi ekki verið honum með öllu sjálfráð. Nú skulum vér athuga, hvernig þessi lýsing, sem reyndar er ekki nema lítið ágrip, kemur heim við það, sem vér vitum um Völu-Stein. Landnámabók segir, að Buríður sundafyllir og Völu-Steinn sonur hennar hafi farið af Hálogalandi til íslands og numið Bolungarvík. Hún var því kölluð

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.