Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 7
IÐUNN
Völu-Steinn.
165
sundafyllir, að hún seiddi til þess í hallæri á Há-
logalandi, að hvert sund var fult af fiskum. Hún setti
og Kvíarmið á ísafjarðardjúpi og tók til á kollótta af
hverjum bónda á ísafirði. Synir Völu-Steins voru
þeir Ögmundur og Egill. Þorvaldur Ólafsson belgs
seldi Ögmundi sauðatökusök á bendur Þórarni gjall-
anda. Fyrir það vo Þórarinn Ögmund á Þorska-
fjarðarþingi. Völu-Steinn tók helstríð eftir son sinn.
t*á fór Egill til fundar við Gest Oddleit'sson, þegar
hann var að haustboði hjá Ljóti enum spaka á
Ingjaldssandi, og bað hann leggja ráð til, að föður
sínum bættist harmurinn. Gestur orti upphaf Ög-
mundardrápu. Af henni eru nú tveir visuhelmingar
varðveittir f Snorra-Eddu, og hiklaust eignaðir Völu-
Sleini. Feir eru á þessa leið:
Ileyr Míms vinar mína,
mér er fundr gefinn Þundar,
við góma sker glymja
glaumbergs, Egill, strauma.1)
Mank, pats jörð við orða
endr myrk Danar sendi
grœnnar gröfnum munni
gein Hlöðynjar beina.2)
Guðbrandur Vigfússon telur þau Þuríði og Stein
hafa komið út eflir landnámstíð. Lætur nærri, að
þau hafi komið laust fyrir miðja 10. öld og Steinn
þá verið kornungur. Um 990 hefir hann verið um
1) Egill, hcyr mina Mims vinar (Óðins) glaumbergs (brjósts) slrauma
(= skaldskap, kvæði) plymja við góma sker (tungu;; raérer gelinn fundr
fundar (Óðins; = skáldskapur).
2) Man ek, ]>at er jörð gein endr gröfnum munni við sendi orða
grœnnar Illöðynjar myrkbeina Danar (myrkbein Hlöðynjar |jarðar) =
bamrar, Danr hamra = jötunn, orð jötuns = guli, scndir gulls = maður
[Ögmundur]).