Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 38
196
Pétur Hamar Péturss:
IÐUNN
veiktist og náði sér ekki aftur, varð að hætta við námið.
Féll honum petta rajög þungt. í sumar sem leið, var hann
farinn að ná aftur kröftum svo að hann gat gengið að
slætti, og voru allir vongóðir um að i haust gæti hann
tekið til við námið aftnr. En í byrjun ágústmánaðar veikt-
ist hann hér i Reykjavík á mjög óvæntan hátt, og hlaust
af því dauði hans, 19. okt. Pétur var með fríðustu ungling-
um, svipmikill, norrænn mjög í sjón. Skal því ekki leynt,
að til voru vonir um að sjá hann sem einn af snillingum
islen/.krar tungu. H. P.
Næturkyrð.
Nú hvílir fold í fadmi blíðrar nætur
og fjöllin reifast þokuhjúpum grá,
en daggartári blómið Baldur grætur
og býst hann heimta kaldri helju frá.
í lækjarhvammi ljúft er nú að una
í lautu niðar fjallalækur smár,
og heyra í fjarska gljúfrin dökku duna
er dimmum rómi kveður fossinn hár.
Um háis og dali hljóðna lifsins raddir
og helg er dýrð þín, Ijúfa sumarnótt;
þú foldarbörnin heitum kossi kvaddir
þau hvíla nú í faðmi þínum rótt;
en lygnum straumi líður fram að unnum
með léttum nið hin tæra silungsá,
en þokan svalar þyrstum blómamunnum
og þögul grúfir yfir tindum blá.
Sumarkoma 1923.
Færði sól oss sumar,
syngja lóur í móum,
lifna blóm í lautum,
lækir niða á skriðum,
kasta klaka-serki,