Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 46

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 46
204 Magnús Jónsson: IÐUNN Þessii' ógnarskór karlmannanna hafa liklega ofboðið svo kvenfólkinu að það hetir varla verið með sjálfu sér af aðdáun á meðan það stóð sem hæst. En þegar löngu skórnir voru að missa tökin, komu konurnar fram og sögðu skák á móti. Og nú var það hæðin en ekki lengdin, sem alt var undir komið. Hælarnir voru gerðir svo háir, að táin sneri nærri beint niður. En nú er það svo um öklaliðinn, að hann er venju- lega ekki svo liðugur að þetta sé hægt, og þar sein eitthvað verður undan að láta, þá bognaði það, sem liognað gat og næst var, en það voru knjáliðirnir. Þótti nú ekkert yndislegra en konur á þessum há- hæluðu skóm, hoknar í knjáliðunum og svo farlama að þær urðu að ganga við stóreflis stafi til þess að velta ekki áfram. Nú voru það konurnar, sem aðdá- unina vöktu með fegurð sinni. Þetta er nú nóg úr píslarsögu fótabúningsins. t*á kemur næsti áfanginn á leiðinni upp eftir þessum þjakaða mannslíkama. Pilsin hafa ekki altaf verið kvenfólkinu til tómra þæginda. Annars eru pilsin ekki gömul flík. t*au koma ekki upp fyr en á 14. eða 15. öld. Áður var pilsið ekki annað en neðri partur kyrtilsins, sem spentur var að mittinu með belti og var steypt yfir höluðið. En þegar það fór að þykja fallegt, að hafa búninginn sjálfan aðskorinn í mittið voru góð ráð dýr, því að brjóstin stóðu fyrir. Þá var gripið til þess snjallræðis að skifta búningnum í þessa tvo parta, sem síðan hefir tíðkast, pils og treyju. En þegar pilsið hafði fengið þessa viðurkenningu fyrir sjálfstæði sinu, var ekki að því að spyrja, að það var farið að finna upp á einhverju, sem gæti látið meira bera á því. Þetta kemur fj'rst fram á Spáni á dögum Filippusar II. Pá er fundið upp á því, að þenja pilsið út með grind úr hvalbeini, stálfjöðrum eða öðru siíku, einkum til hliðanna. Ýmsar af mynd-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.