Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 54

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Page 54
212 Magnús Jónsson: IÐUNN og yrði of langt að telja upp alt það, sem á það hefir verið lagt í þjónustu fegurðarinnar. Hér skal aðeins minst á fátt eitt. Árið 1385 kom Isabella frá Bayern, drottning Karls VI. Frakkakonungs til Parísar og var með höfuð- búning, sem flestir gerðu gys að. En hláturinn fór fljótt af og þessi höfuðbúningur, sem kallaður var »hennin« fór sigurför um álfuna. Má sjá eina tegund hans á 7. mynd. Fað var líkast sykurtoppi í laginu, h. u. b. meter á lengd, búið til úr glitofnum silkidúk, prýtt gulli og gimsteinum, en snúrur og slæður hengu niður úr því. Stundum var þessi höfuð- búningur klofinn í tvent og stóð sitt hornið í hvora átt. Voru dæmi til þess að stækka varð hallardyr, til þess að frúin kæm- ist inn með hornin óskemd. Yfir- leitt hafa höfuðbúningar haft ná- lega allar upphugsanlegar myndir, stærðir og stað eins og sýnt verður. Framan af 19. öldinni voru kvenhattar sífelt á ferð og flugi um höfuðið. Voru þeir kallaðir í gamni: 1. wkystu mig ef þú getur«; hann var svo stór og framarlega, að hvergi var hægt að komast að andlitinu, 2. »kystu mig ef þú þorir«; hann var svo lítill og tylt svo tæpt ofan á höfuðið, að hann sýndist hljóta að detta, hve lítið sem út af bar, og 3. »kystu mig ef þú vilt«; hann var aftan á hnakkanum, stóð hvergi í vegi fyrir andlitinu. Þetta voru nú alt góðir og meinlitlir hattar. En svo komu nýlega hattprjónarnir frægu, sem við munum eftir á okkar ungdómsárum, og létu eftir sig ljótar rispur á náunganum i þrengslum. Þegar við lítum á hattana og húfurnar, sem karl- menn bera nú á dögum gæti okkur virzt ótrúlegt,

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.