Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 59

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 59
IÐUNN Róm. 217 Loks kom ég auga á þjón hótelsins og gaf mig fram við hann. Hann hafði vagn handa mér og varð ég feginn er ég komst út af járnbrautarstöðinni og ók af stað. Brátt náði hrifningin tökum á mér aftur. — Ókum við fram hjá fögrum gosbrunni og svo upp hæð nokkra siðan niður í djúpan dal og upp bratta brekku eftir via Sistina. Varð ég mjög glaður í anda, er ég kom auga á stóra töflu greypta inn í hliðina á húsi er við fórum fram hjá. Gat ég séð á henni nafn Alberts Thorvaldsens. Eg tók í skyndi ofan, til þess að heilsa minningu þessa fræga landa. — Að vörmu spori vorum við komnir að hótelinu, og sá ég strax að ég hafði verið heppinn í valinu. Hótelið stóð á einum hinum fegursta stað í bænum. Við hlið þess stóð ein af stóru kirkjunum íRóm: chiesa di ss. Trinita dei Monti. Og fyrir framan lá upp- hlaðið svæði með afarháum obelisk á því miðju. — Það lá hátt upp i hlfðinni á Monte Pincio og ganga þaðan afarbreiðar tröppur 135 niður á sléttuna. Er þar fyrir neðan stórt torg, Piazza di Spagna og ganga þaðan götur í þrjár áttir. Aí háa torginu, sem hótel- ið mitt stóð við, var hin dýrlegasta útsýn yfir alla nýrri borgina. Mændu hátt við liiminn stórhýsi og kirkjuturnar og bar Péturskirkjuna hæst. Næsta morgun fór ég snemma út að skoða borg- ina. Fór ég leiðsögulaust eitthvað út í bláinn. Reik- aði ég víða um og gaf mig á vald hinni þægilegu einveru i mannstraumnum. Hvergi er maður eins einn eins á fjölförnum stöðum í ókunnri borg. Brátt rakst ég á Tiberfljótið og nam þar staðar á brú einni og horfði niður á hinn gula straum. Pá skildi ég fyrst, hversvegna Horatius kallar hann flavum Ti- berim. Eg hefi aldrei séð eins mógult vatn. Hér fanst mér eins og ég hefði rekist á gamlan og góðan vin. Eg drakk i mig strauminn með augunum, og með bylgjum hans bárust ótal myndir frá löngu liðn-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.