Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 63

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 63
IÐUNN Róm. 221 annar í hvítasunnu. Og fylgdi með aðgönguteikn og skírteini. Eftir að ég hafði hjá kammerherra de Paus fengið leiðbeiningar um það, sem ég helst þurfti að vita um framgöngu og aðra hluti, fór ég svo á til- settum degi til Vatikanhallarinnar. Mér var leiðbeint inn í afarstóran biðsal og þar sendi ég inn skírteini mitt ásamt nafnspjaldi kammerherrans, og gerði ég það að undirlagi hans. Að vörmu spori kom sá hirð- maður, er tekið hafði á móti skírteininu, aftur til mín og kvaddi mig að fylgja sér. Fór hann með mig i gegnum eina 4 sali, afarstóra og glæsilega, inn í einn fremur lítinn sal og setti mig þar í röð þeirra, er fyrir voru, en það voru 5 fullorðnir og 17 eða 18 smámeyjar 8—12 ára að aldri og voru þær allar í fannhvítum búningi. Ég þóttist vita að það mundi vera skóli einhver, og voru 4 nunnur (ég heldJósefs systur) með þeim. Kammerherra de Paus kom síð- an inn og gekk til mín og fagnaði mér hið Ijúf- mannlegasta, tók hann mig út úr röðinni og vísaði mér til, hvar ég skyldi vera og vár ég þar út af fyrir mig. Á gangi um salinn voru skrautbúnir kammerherrar og lifvarðarforingjar, en við hverjar dyr stóðu varðmenn úr Schweissneska lífverðinum í miðalda einkennisbúningum, stóðu þeir þar með brugðnum sverðum. Meðan á þessu stóð voru sal- irnir þeir, er ég hafði gengið í gegnum, að fyllast af fólki og var raðað upp í hálfhringi, en alt fór þetta svo hljóðlega fram og með svo mikilli reglu að jafn- vel ekki ys heyrðist. Nú er alt var í röð og reglu, var dauðakyrð yfir öllu og Ioftið eins og þrungið af eftirvæntingu. Svo kom Páfinn inn, allir beygðu kné og áheyrnin byrj- aði. Pálinn gekk meðfram röðinni frá hægri til vinstri, staldraði lítið eitt hjá hverjum manni, rétti honum hönd sína, skreytta hinum stóra embætlishring, sem allir kystu á, og sagði fáein blessunarorð við hvern.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.