Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 67

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 67
IÐUNN Róm. 225 klæddir eða í ýmsum prestabúningum og konur voru allar svartklæddar í háhálsuðum og ermalöngum kjólum. Allsstaðar voru kammerherrar og hirðmenn, er röðuðu í tölumerkt sæti. Fór það alt vel og hljóð- lega fram. Schweizzneskir lífvarðarmenn stóðu með jöfnum millibilum á verði. Fyrir framan þennan sal eru aðrir stórir salir, sala Regia o. fl. Voru þeir fullir af fólki, er aðgöngu hafði til þess að sjá skrúðgöng- una fara fram hjá. Þegar nú alt var komið í röð og reglu, þá fór skrúðgangan að nálgast; heyrðist þá dynjandi lófaklapp utan úr fremri sölunum. Nú kom skrúðgangan inn í aðalsalinn. Fyrst komu ýmsir háir embættismenn hirðarinnar og þar næst flokkur manna í rauðum kápum og bar einn þeirra gullmítur Páfans á svæfli. Svo var borið fram afar stórt og hátt kross- mark, og þar á eftir kom kardinala-skarinn í rauðum hempum og þar yfir fjólubláum kápum; var það einhver virðulegasta sveit manna, sem ég hefi séð. Loks kom Páfinn sjálfur sitjandi í burðarhásæti sínu (»Sedia gestatoria), bornu af 8 Schweizzneskum hermönnum, en við hliðina að framanverðu gengu tveir kammerherrar, er báru afarstóra blævængi úr strútsfjöðrum. Páfinn var í fullu páfaskrúði með mítur á höfði, alt hlaðið gulli og gimsteinum, og sindruðu af þeim geislar í öllum litum. Hann blessaði fólkið til beggja hliða. — Var meðan á þessu stóð sungið af kóri Sixtinsku kapellunnar; var sú söng- sveit í sérstakri aftjaldaðri stúku hægra megin í salnum framanverðum, er inn var gengið. Rað sem sungið var voru orðin úr Matth. 16, 18—19: Tu es Petrus o. s. frv. Á eftir burðarstólnum gekk flokkur patriarka í austurlenskum búningum og þar næst erkibiskupar og biskupar, ábótar og ýmsir tignar- menn kirkjunnar. Þegar burðarstóllinn var kominn inn að básætinu, steig Páfinn úr honum í hásætið og settist. Kardin- Iðunn III. 15

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.