Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 70

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 70
228 Helgi Pjeturss: IÐUNN kunnugt um þessi undirstöðuatriði. Og eins þýðingar- mikil viðbót við þekkinguna á jarðfræði íslands og gabbrofjöllin á Snæfellsnesi, er þar heldur ekki nefnd. II. Berginu íslenzka verður að skifta í 3 aðaldeildir. Fyrst er (1) hin eldri blágrýtismyndun með milli- lögum (infrapliocen basaltformation), þá (2) pliocenu lögin á Tjörnesi; og þar fyrir ofan (3) hin yngri blá- grýtismyndun með millilögum og eldfjallarústum (suprapliocen eða pleistocen basaltformation). Þessa yngri blágrýtismyndun sem er svo þykk, að álitleg fjöll eru af henni gerð, að miklu leyti, eða jafnvel frá rótum, eins og Múlafjall við Hvalfjörð, höfðu menn ekki þekt. En fyrir jarðsögu íslands er þetta nokkuð áþekt og ef sagnfræöingar hefðu ekki vitað af Sturlungu og biskupasögunum, að Árna biskups sögu undantekinni, og þó ekki allri. Menn munu finna, ef þeir rannsaka það sem hér er sagt, að ég er ekki vitund að ýkja. Menn vissu heldur ekki, að pliocena jarðmyndunin, sem er geysiþykk, liggur á milli blágrýtismyndana, en það er atriði sem skiftir mjög miklu þegar skilja skal jarðsögu landsins. III. Munurinn á blágrýtistnyndaninni undir og ofan á pliocenu lögunum, er afar mikill. í eldri blágrýtis- myndaninni eru millilög sem sýna að loftslag hefir á íslandi verið miklu hlýrra en nú; en í yngri blá- grýtismyndaninni eru millilög sem sýna að loftslag hefir verið miklu kaldara en nú er. Munurinn svarar því, að Island hefði flutst sunnan frá Miðjarðarhafi og norður fyrir Spitzbergen. Kuldann má marka af skeljaleifum sem ég hefi fundið í hinni yngri blágrýtismyndan, en annað sem sýnir hið kalda lolts-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.