Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 82

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1924, Side 82
240 Ritsjá. IÐUNN lengra. Hefti þetta nær frá leggja—skessa og mun þá vera álíka áfangi eftir enn. Pað er meira en litið tak, sem íslenzku nútiðarmáli er tekið með pessari bók og að þvi leyti er hún ómetanleg. Auðvitað er langt frá því, að hún tæmi orðaforða íslenzk- unnar, og meira að segja þarf maður venjulega ekki mjög lengi að leita til þess, að finna annaðhvort orð eða merk- ingu orða sem vantar, en þar sést líka einmitt eina leiðin blasa við til þess, að fá nokkurnveginn fullkomna orðabók, sú, að moka fyrst jafn stórkostlega ofan af eins og hér er gert, og láta svo fjölda manns leita, og nota það alt við næstu útgáfu og svo koll af kolli. En einmitt vegna þess, að orðabækur, sem eru frumsmið að mestu, eins og þessi er, verða þannig að fullkomnast, er það svo mikils virði, að bókin sé styrkt svo ríflega fjarhagslega, að hún geti kvalalaust endurnýjað sig sjálf, eins og hugsað er til með þessa orðabók. Pað er liklega, að öllu athuguðu, varla annað merkilegra verk verið að vinna nú fyrir islenzka menning en útgáfu þessarar orðabókar. M. J. Tvö sönglög eftir SÍRualda Kaldalóns, lækni hafa Iðunni verið send. Eru fög þessi við tvö stórfræg og fögur kvæði islensk, Betlikerlinguna eftir Gest Pálsson og Ásareiðina eftir Grím Thomsen. Bæði eru lög þessi sniðin fyrir einsöng með undirspili og eru falleg og viðfeldin eins og svo mörg lög eftir sama höfund. Ekki ætlar Iðunn sér að dæma þau eins og hún hefði eitthvert úrskurðarvald í þeim efnum, en vill aðeins benda á þau og segja, að henni þótti þau falleg. M. J.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.