Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 7

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Page 7
IÐUNN Nesjamcnska. 197 lík ókjör að segja, hvenær sem forsjónin er svo nær- gætin að leggja þeim til nógu auðvirðileg viðfangsefni. I öllum Nor'ðluriandabúum er rígfælin geðvonzka við hressandi hugsunum. Svíar til dæm.fs hafa ræktað með sér lundarlag, — og hér með er vitanlega átt við borg- arastéttina —, sem gæti hafa nærst og orðið til við le:tur Bjar,ma vestur í Porskafirði eða norður við Mý- vatn. Einn gáfaðlaisti snillingur, sem það gleðisnauða land hefir borið, teiknaði einu sinni rnynd af Gustafi Adolf, |)ar sem hann var að bursta í sér tennurnar morguninn fyrir orrustuna við Lútzen. Pað varð ógur- Ieg emjan um alt landið. Þessi guðlausi maður var að svívirða helgustu minningar þjóðarinnar. Þar með flaut orðhragð og getsakir, sem voru að innræti til ein,s og simskeyti, sem sumdr hreppstjórar send.a hér um þing- kosningar til að greiða fyrir skilningi á pólitískum and-i stæðingum. Snillingurinn sænski svaraði virðuiiegum samborgurum sínum af mestu kurteisi. Hann kvaðst nú hafa komist að raun um, að Gústaf Adolf iðkaði aldrei þá einföldu hreinlætisneglu að bursta í sér tenmurnar. Hann bæði því afsökunar á myndinni. Þetta, sem nú hefir verið sagt, á við um þjóðir, seni' hafa nokkurn veginn sæmilegar samgöngur, selja fram- leiðslu sína daglega gegn peningagreiðslu út í hönd og eru komnar á viðunandi stig í þrifnaði og matargerð. Það tekur því þess vegna ekki fyrir neinn að fitja úppi á nefið, þó að það sé hreinlega játað, að vér, mörland- arnir, séum ekki sérlega risháir í alþjóðlegum hugsun- arhætti. Einhæfni atvinnuveganna, sölutregða, kaupfé- lagsskuldir og ergelsi eru hvert um sig prýðilegur jarðvegur fyrir þessa sálarliegu aldeyfu — nesjamiensk- una. Vér erum of fjarlægir umheiminum og of ómerkileg-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.