Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Qupperneq 70
260
Kreuger-æfintýriö.
IÐUNN
eí pó blákaldur vieruleiki. Jafnframt hafði hringurinn
orðið að kenna útlendingununi sænska framleiðslutækni,
pví annars myndu verksmiðjur hans í öðrum löndum
hafa verið reknar með tapi. Nú kemur petta Svíum í
koll, pegar borg Kreugers er hrunin. Það er næsta ó-
liklegt, að Svípjóð vinni nokkurn tíma aftur sJíka
aðstöðu á pessu sviði, sem landið hafði áður en paö
gerðist eldspýtnastórveldi.
KREUGER & TOLL.
Hlutafélagið Kreuger & Toll var stofnað 1911 með
1 milj. kr. hlutafé. Upphaflega var pað byggingarfélag,
sem að vísu hafði aðalbækistöð sína og meginstarfsenii
í Svípjóð, en teygði pó brátt anga sína til Finnlands,
Rússlands, Þýzkalands og jafnvel víðar. Tilhneiging sú
til útpenslu, er ávalt siðan einkendi Kreuger-hringinn,
kom strax> í Ijós. Eins og áður er frá skýrt, náði pað
tökum á eldspýtnaiðju Svfa árið 1913, og eftir pví
sem árin liðu gerðist pað lítt við eina fjöl felt. Árið
1917 var byggingarstarfsemin greind frá og gerð að
sérstöku félagi, Byggingar-hlutafélaginu Kreuger & Toll.
Um svipað leyti varð til Sænska eldspýtnafélagið, sem
áður er getið, og var pað önnur greinin út frá frum-
stofninum. Þannig myndaðist eitt félagið af öðru, og
hélt sú fjölgun áfram alla tíð síðan, en öll v'oru félög
pesisi í tengslum og mynduðu einn viðskiftahring, er
ýmist var nefndur Kreuger-hringurinn eða Eldspýtna-
hringurinn. Frumstofninn eða móðurfélagið, Kreuger
& Toll, gerðist, er stundir liðu, hreint fjármálafyrir-
tæki, sem ekki rak neina verklega iðju, en var paö, sem
Ameríkumienn nefna „a holdmg company“.