Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 72
262
Kreuger-æfintýrið.
iðunn
.ax í þann virkisgarð, er svo að segja lykur um heinir
innf á þessu sviðii.
Kreuger hafði nú fengið skrið á skútuna, og ferill
hans lá frá einum signinum til annars. Ekkert sýndist
honum ófært. Félög ha'ns efidust að valdi og álifi-
Sjálfur varð hann í vitund almennings að eins konar
Mídasi konungi., sem gerði að gulli alt, er hann snerti
við. Traustið á fyrirtækjum hans var ótakmarkað, og
arðhungrið æstist við hinn mikla hlutagróða, sem þau
gáfu. Peir, sem einhverja skildinga áttu, vildu aliir
fela Kreuger að ávaxta þá. Kneuger & Toll varð í æ
stærri stíl milligöngumaður þeirra, sem leituðu gróða-
vænlegs markaðs fyrir fé sitt. Á þessum árum leitaði
fjármagnið mjög til Mið-Evrópu, eins og áður er sagt,
að mestu leyti amerískt fjármagn, en einnig nokkuð af
brezku og frönsku. Og samkvæmt ársskýrslu Kreuger
& Tolls fyrir 1921 hafði félagið haft milldgöngu uni
helming allra lánveitinga til langs tíma handa Mið-Ev-
rópu frá stríðslokum og fram að því ári.
Með árinu 1926 verður fjármálastarfsemi Kreugers
enn miklu víðtækari og umfaugsmeiri. Eldspýtnahring-
urinn grípur nú fyrir alvöru inn í milliríkjaviiðskiftin.
Hringurimn fer að tryggja sér einkasölu á eldspýtum í
jieirn löndum, þar sem liann ekki þegar er einvaldtir
yfir framleiðlslunm, gegn því að veita ríkjunum lán.
Fjármagnið til iána þessara fær Kreuger tii að byrja
með að mastu frá Ameríku. Það kemur í 1 jós, að ríki,
sem eru svo tæpt stödd fjárhagslega eða njóta svo
litifs trausts, að þau geta ekki af sjálfsdáðum komið út
skuldabréfum sínum, leika sér að því fyrir milligöngu
Kreuger & Tolls. Svo grunranúrað er traustið á félag-
inu orðið, að fjármálaheimurinn telur ábyrgð þess
raeirá vizði en meðai-ríkis eða jafnvei meðal-stórveldis.