Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 84

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 84
274 Kreuger-æfintýrið. iðunn hefir af peningunum. Nokkur hluti freirra hefir fariö í ómakslaun, lent í vasa l>eiraa, sem höf&u milligöngu um fjá'rútveganir fyrir Kreuger og félög hans. En rnest- ur hlutinn hefir runnið aftur til jieirra, sem trúðu Kreu- ger fyrir fé sínu, hluthafanna, í svindilfyrirtækjum hans. Peningarnir leituðtu heim aftur sem hlutaarður og gróði á verðbréfabraski. Pessir hluthafar kveina nú sáran yfir fjársvikum Kreugers. En svikin eru miestmiegnis í því fólgin, að Kreuger hefir gint þá til að iifa hátt og eyða eignum sínum, en sjálfir hugðust þeir vera að eyða arðinum af þeim. Síðan Kreuger tók sig af lífi og alt komst upp, hefir hann verið lastaður mjög fyrir svik sín og svindilbrask, og fer slíkt að vonum. Öheppinn maður verður æfiinlega fyrir álasi. En himu skulum við ekki gleyma, að hefði Kreuger tekist að halda braskfleytu sinni ofan vatns fratn á þenna dag, þá væri hann nú dáður og tignaður, umkringdur af skriödýrum og smjöðrurum, þeim hin- um sömu, er nú sparka í hann dauðan. Og hefði hon- um nú lánast að svindla sig áfram til borgara.legs dauð- daga, þá hefði hann farið í gröfina heiðri krýndur og þjóð hans klætt sig í sorg. ívar Kreuger hafði gengiö í skóla hjá auðjötnum Am- eríku, og hann bygði upp hrjng sinn eftir amerískum fyrirmyndum. Starfsaðferðjr hans voru í öllum megin- atriðum þær sömu ogMorgans, Rockefellers, Rothchikls og hvað þeir nú heita, þessir öflugustu máttarstólpar og verndarar þjóðfélaganna. Kreuger er ekki jafn-ein- stæður í sinni samtíð eins og náhrafnar blaöanna reyrva að telja okkur trú um. Bæði einstaklingar og stofnanir vinna í hans anda og eftir sömu meginreglum. Hinir voldugu viðskiftabankar nútímans starfa á nákvæmlega sama grundvelli og Kreuger &. Toll. VaLd þessara stofn-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.