Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 89

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 89
ÍÐUNN Dæmisaga. 279 Þegar heim kom, lét hann þegar slökkva í eldstónnj og taka ofan alla pottana og opna hverjar dyr upp á gátt, svo sálir hinna fordæmdu flugu beina leið til himnaríkis; það vildi svo til, að petta g-erðist einmitt á uppstigningardegi. Þarna komu þeir, bæði Barrabas og Pontius Pílatus og svo sál nokkur að n-afni Gi-ordano Bruno, sem hafði verið allra heiðingja verstur. Og þarna kom Marteinn Lúther í annað sinn; hann hafði gist hér áður, en verið rekinn burtu v-egna þesis, að hann hafði unddr eins farið að bjástra með siðbót, ætlað sér að snúa Guði al- máttugum frá réttri trú og heimtað að fá að negla upp kennisetningar sínar á sjálft himnahliðið. Sankti-Pótur var önugur og vildi ekki sleppa þeini inn, en Jómfni María bað svo vel fyrir þeim, að þeim var leyfð innganga að lokum. En þegar nafna herunar frá Magdölum ætlaði að iaumast inn í skjó-li fjöld-ans, þá lagði hún blátt bann við því. Hún ætlaði ekki að hýsa slika p-ersónu, sem lagði í vana sinn að fiangra- úti um nætur o-g framdi gerningar með postuiunum og .ætlaði sér kannsk-e ekk-ert minna en að v-erða tengda- dóttir á heimilinu. Það var langt frá því, að allir íbúar himnaríkis væru .ánægðir með, að hinum fordæmdu sálum var hleypt inn. Ef þetta yrði látið við gangast, h-efðu þeir sjálfir alveg eins getað haldi-ð áfram að syndga meðan þeir iifðu á jörðinni og tækifærin buðust. Eins og það væri nokkurt réttlæti í því, að þeir, s-em höfðu lifað í vel- l'ystingum og velt sér í syndinni, slyppu við maklega re-fsingu! Og nokkrar siðavandar prestasálir tóku sig saman og gengu fynir Guð almáttugan og kærð-u. En Guð almáttugur var nú á þeirri skoðun, að úr þvi að synd-aselirnir hefðu sloppið inn, yrðu þeir að fá að

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.