Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 92

Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1932, Side 92
282 Dæmisaga. IÐUNN <ið frelsa mennina frá synd og Satans vélabrögðum, þegar svo væri komið, að enginn fengist lengur til að syndga og Satan freistaði ekki nokkurrar hræðu. Það ■væri fásinna hin mesta að halda, að nokkuð rættist fram úr, á meðan Kölski sæti einn sins liðs á neðri bygðinni og gerði ek'ki annað en að leggja spil. Nei, hann yrði sannarlega að vinna sitt skylduverk og freísta mann- anna á djöfla vísu. Og svo yrði að byggja fleiri kirkjur og fleiri drykkjukrár og pútnahús og fleiri kastala og betrunarhús og lærða skóla. En fyrst og frenist yrði að útvega fleiri presta. Því að nú væri þeir orðnir margir meðal mannanna, sem læsi biblíuna blátt áfram, alveg eins og fjandinn sjálf- ur. Og þegar skrifað stæði: Þú skalt ekki deyða og ekki bera falsvitni og ekki safna þér auðlegð á jörðu og ekki eta upp hús ekkjunnar á meðan þú þylur lang- ar bænir til þess að sýnast — þá héldu þeir í /neilagri einfeldni sinni, að slíka hluti mættu þeir alls ekki gera. Af sjálfsdáðum gætu menntrnir aldrei skilið, að Gruð hefði alis ekki meint þetta, heldur nærri ]>ví hið gagnistæða, og því væri brýn þörf á mörgum prestum til þess að leggja út ritningarnar og útlista fyrir fólkinu, hvað i slíkum boðum væri í raun og veru fólgið. Guð almáttugur ígrundaði þetta bæði vel og lengi. og hann sá í hendi sér, að prestsálin hlaut að vera af- skaplega Lærð. En hann gat nú samt ekki verið aJveg á sama máli. Þá mælti sálin: Varst það ekki þú, sem drapst alla frumburði Egyptalandis á einni nóttu? — Ju-ú, svaraði Guð almáttugur. — Og Ammonítana og Ainalekítana og Midíanitana og Móabitana? — Jú, svaraði hann og sneri sér að sveit sinni, því

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.