Hlín. - 01.04.1902, Síða 33
2.3
göngur við útlönd, sem og innanlands; fleiri og öflugri
verzlanir nú í landinu en áður voru o. s. frv. Aftur á
mótier vöruframleiðslan ílandinu nú langtum minni en góðu
hófi gegnir (sérstaklegatil sveitanna) í hlutfalli við aðflutt-
ar vörur frá öðrum löndum, sem ásamt fleiru leiðir til
nieiri fátæktar og meiri skulda. Jafnframt þessu fara
kröfur manna til manndómslegra lífs stöðugt vaxandi, og
þeim samfara meiri óánægja með lífið, sem er náttúr-
legt, þegar kröfunum verður ekki fullnægt. — Og svo
kemur þetta einstaka tækifæri til að bjarga lífinu, sem
ekki var kostur á í fyrri daga, — það, að fara til
Ameriku. Til þessa auðsada, frjálsa, fagra og sólríka
undralands, sem óaflátanlega breiðir út líknar- og náðar-
armana móti okkur íslendingum, sem öðrum mislukk-
uðum mönnum er þangað Ieita, þegar hamingjan hefir
snúið bakinu við þeim heima í föðurlandinu, og stund-
um líka án knýjandi ástæðu.
Og það er einmitt þetta tækifæri, að fara til
Ameríkit, sem veldur því meðal annars, að nú eru hœttu-
legri tímar fyrir Island en nokkru sinni áður; en vegna
þess auðvitað, að ástandið hér heima er eins og það
er. Vegna þess, með leyfi að segja, að vér fylgjum
ekki tímanum, nema ef til vill í því, að gera strang-
ar lcröfur til lífsins og landsins okkar.
Sú mjög svo almenna spurning, hvort betra sé
að vera hér eða í A m e ríku, kemur hér ekki til greina.
Slíkri spurningu er líka örðugt að svara. — En hitt er
víst, að það er búið að sýna það og sanna, að Ameríka
er byggilegt latid, og reynslan sýnir, að Ameríka hefir
ákaflega mikið aðdráttarafl. Það sein vér ísl. þurfum
því að gjöra er það, að fara nú að sý n a og sa n n a
að fsland sé byggi/egt land, og það á þann hátt, að
ekki verði móti mælt, sem sagt.