Hlín. - 01.04.1902, Síða 53
43
t Mjólkur- og rjómaflutningskönnur þurfa að vera úr
þykku „fortinuðu" plötujárni með 2 höldum í miðjum
hliðum og með loki,' er fellur þétt innan í þær, er fylgi
innihaldinu eftir. Hentugt er að þær taki um 40 potta
hver, en til þess ættu þær að vera um 22 þuml. á hæð
og um 12 þuml. á vídd í þvermál. — Mjólkurflutnings-
vagnar þurfa helzt að vera yfirdektir með olíudúkum, er
séu strengdir á granna tré- eða járngrind yfir vagninn.
Mjólk og rjómi mega ekki vera heitari tilflutnings áverk-
stæði en 12 gr. á C., en kaldara en það er þó enn betra.
Þar sem mjólk eða rjómi eru flutt saman til smérgerð-
ar, þá er telcin „prufa" af hvers einstaks mjólk á hverj-
um degi, og smérgildið í henni svo mælt með fitumæl-
inum á verkstæðinu einu sinni eða oftar í viku, og út-
koman svo skrifuð í bækur. Svo er smérinu eða verði
þess deilt eftir bókunum á vissum tímum milli hlutað-
eigenda; fær þá hver einn nákvæmlega sinn rétta hlut;
því stærri hlut, seni mjólkin hans er fitumeiri í hlutfalli
við hinna.
Eftir því sem eg liefi komist næst, þá álít eg að
tilkostnaðurinn við stofnun smérgerðarhúsa muni í flest-
um tilfellum verða álíka mikill í hlutfalli við smérfram-
leiðsluna og sá kostnaður, sem nauðsynlega útheimtist
til þess að stunda smérgerð á heimilunum, sé það gert
með tilheyrandi áhöldum. Og vegna þess einnig erþví
sjálfsagt að leggja svo mikla áherzlu á stofnun smér-
gerðarhúsa sem mögulegt er, alstáðarþar sem þau geta
mögulega att sér stað; — það gefur vissastan arðinn,
og tryggir oss útlenda markaðinn fyrir smérið, er hlýt-
ur að leiða til þess að halda því í viðunanlega háu verði
innan lauds, þrátt fyrir það þótt smérframleiðslan í land-
inu aukist stórkostlega úr því sem nú er.
Eg geri ráð fyrir að áhöld og efni til smérgerðar-