Hlín. - 01.04.1902, Síða 71
6i
að búa þœr til, þegar minst varir, og að einstök stykki
til þeirra verði þar af leiðandi með öllu ófáanleg ept-
ir fá ár. — í sambandi við þetta vil eg leyfa mér að minna
menn á, hvernig gengið hefur hér á landi með sölu og
meðhöndlun saumavélanna. — Mér er persónulega kunn-
ugt um, að mikill fjöldi þeirra hefur orðið ónýtur fyrir
tímann, ýmist af því, að fólk kunni ekki að meðhöndla
þær, eða af því, að einstök stykki til þeirra voru ófáan-
leg, sem eg álít beina afleiðing þess, að þær hafa
verið útvegaðar af óvöldum mönnum af handahófi, sem
ef til vill hafa haft það eina augnamið með útvegun
þeirra, — að selja. — Menn mega vel gæta þess, að
ekki fari eins með skilvindurnar. — Þær eru of dýr áhöld
til þess, fyrir handvömm að hafa þeirra ekki full not,
eins og reyndar má segja um, alla hluti, að þeir séu
of kostbærir tii þess að misbrúka þá,
Það er vel gert, að útvega fólki skilvindur og allt,
sem lýtur að því að gera vandað, útgengilegt smér.
En það er illa gert, að útvega fólki annað en beztu
skilvindurnar. En svo er ekki nóg að útvega jafnvel
beztu skilvindurnar, það þarf jafnframt að útvega öll
ðnnur tilheyrandi áhöld, o. fl. þar að lúlandi, og beztu
tegundirnar af því, og svo þarf að leiðbeina fólki í með-
höndlun áhaldanna.
III.
Eg þekki vandaðar skilvindur af 4 mismunandi teg-
undum, sem hafa gott orð á sér sem ágætis vélar, al-
staðar þar sem þær þekkjast, að svo miklu leyti sem
eg veit til; og 3 af þeim eru til framboðs einnig í
Norðurálfunni, og eru þær þessar: 1. »Alexandra«,
2. »Alfa Laval«, 3. »Melotte«. Þessar þrjár skil-
vindur eru sem sé heimsfrægar sem ágætisvélar,
fyrir mikilsverða yfirburði hver ein, þótt þær séu all-