Hlín. - 01.04.1902, Page 74
64
betur en allar aðrar í langflestum tilfellurn, er einnig virð-
ist sanna, að það er undir meðhöndluninni komið með
allar skilv, hvernig þær aðskilja í hverju tilfelli.
»Alexandra« hefur fengið fyrstu, hæstu verð-
laun, á 18 sýningum víðsvegar um heiminn síðan 1890
í kappraun á móti öðrum skilvindum, sem sú bezta —
og eg veit ekki til að því hafi verið mótmælt. — Það
virðist því meiri ástæða til að fullyrða að hún sé
bezta skilvindan, heldur en að segja slíkt um lítt reynd-
ar eða óreyndar skilvindur, sem lítt eða ekki hafa náð
nokkurri viðurkenningu, þótt þær annars kynnu að vera
þessum betri.
Það er auðvitað ekkert á móti því, að menn kaupi
lítt eða ekki reynda hluti, svo skilvindur sem annað, til
þess að reyna gildi þeirra, ef þeim svo sýnist; það get-
ur auk heldur verið mjög nauðsynlegt, því að í byrjun-
inni hljóta allir hlutir að vera óreyndir , hversu góðir
sem þeir annars kunna að vera; og tæplega er fyrir það
að synja, að ekki geti komið til framboðs á þessum menn-
ingar- og umbótatímum betri hlutir nýir en þeir beztu
af líku tagi, er áður voru til, þótt óaðfinnanlegir þyki.
— En þar á mót, á almenningur ekki að láta ginnast til
að t'rúa röklausum fullyrðingum og skrumi um annað
eins og það, að einn hlutur sé betri en allir aðrir;
en allra sízt þó, þegar um líkt þektan hlut er að ræða
gagnvart vel þektum og vel reyndum hlut. — Þar á að
krefjast röksemda, en ekki að trúa í blindni.
Það sem helzt mælir með »Alfa Laval« er það,
hve ágætlega hún aðskilur mjólkina, það er : hve
vel hún nær smérfitunni úr nýmjólkinni, eða með öðrum
orðum : hve lítið hún skilur eptir af smjörinu í undan-
renningunni. Þessi kostur er auðsælega stórmikils virði,
þar sem hann er öðrum höfuðkostum samfara, því að