Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 51
Skáldið og prestahöfðinginn
Petter Dass.
— Þriggja alda minning —
Eftir prófessor dr. Richard Beck.
Yfir fáskrúðugar og rislágar bókmenntir Norðmanna á
éíðara helmingi 17. aldar
gnæfir skáldskapur presta-
höfðingjans Petter Dass líkt
og fjall yfir flatneskju. Eigi
að síður á hann fyrirrennur-
um sínum í norskri ljóðagerð
skuld að gjalda, því að frá
honum má rekja þræðina til
þeirra með ýmsum hætti,
enda farast einum fremsta
bókmenntafræðingi Norð-
manna, dr Francis Bull pró-
fessor, þannig orð um hann
i hinni miklu bókmenntasögu
sinni:
„Petter Dass var bæði í
trúarlegum skáldskap sínum
harmljóðum og tækifæris-
kvæðum, sem í hinni miklu
landshlutalýsingu sinni, sá maðurinn, sem rís hæst allra
norskra skálda á 17. öld, — hann er, meira að segja, hinn
eini þeirra, sem ber með heiðri skáldsheitið; fyrirrennarar
hans eiga sér að vísu nokkurt bókmenntasögulegt gildi,
en verk hans og persónuleiki hafa lifað fram á þennan dag.
Heillar aldar listræn viðleitni og trúarleg grandskoðun
ná hjá honum hámarki sínu á norskym vettvangi,“
10