Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 77

Kirkjuritið - 01.04.1948, Page 77
KRISTILEG ÆSKULÝÐSFÉLÖG 171 Mér er kunnugt um, að þessari hugmynd hefir nokkrum sinnum verið hreyft á prestafundum á undanförnum árum, og veit líka, að biskup landsins og nokkrir prestar eru henni hlynntir, en fundarsamþykktir einar saman, sem ekki er annað gert með en eyða í þær bleki og pappír, vilja verða harla léttar á metunum. Kennarar mundu flestir fúsir til að aðstoða prestana í þessum félagsstörfum, og trúlegt er, að foreldrar og aðrir aðstandendur unglinga mundu vilja hlúa að þessum ný- Félög innan hverrar sýslu mynduðu svo sýslusamband, og sýslusambönd landssamband. 1 stjórn landssambands- ins yrði að velja úrvals fólk, er sæi um útkomu á ársriti félögunum til stuðnings og uppörfunar. Innan fárra ára frá stofnun félaganna yrðu fyrstu meðlimir þeirra fullorðið fólk. Þessi félög og ungmennafélögin mundu svo fljótlega renna saman, verða eitt og sama félag, með nafninu: Kristilegt æskulýðsfélag. Þörfin hrópar, bjargið œskunni. Jóhann Sigurðsson. Löngumýri, SkagafirÖi. Bœkur sendur Kirkjuritinu. Sjálfsævisaga Þorsteins Péturssonar á Staðarbakka. Sjálfsævisögur merkra og mætra manna geta verið einhver hollasti og skemmtilegasti lestur, og er svo um ýmis þesskonar rit á íslenzka tungu. Má þar t. d. nefna: Ævisögu séra Jóns Steingrímssonar og Sögukafla Matthíasar Jochumssonar. Sjálfs- œvisaga séra Þorsteins jafnast að vísu engan veginn á við þau nt, en hún er eigi að síður nákvæm og merkileg bók, enda mikið rit, um 500 bls. 4to, og til útgáfunnar vandað í alla staði. Séra Þorsteinn var uppi á árunum 1710—1785. Hann var mjög áhugsamur og skyldurækinn prestur og prófastur og jafnframt afkastamikill rithöfundur. Hann var hrifinn af Píet- istastefnunni, sem barst hingað til lands með Ludvig Harboe,

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.