Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1951, Side 16

Kirkjuritið - 01.12.1951, Side 16
266 KIRKJURITIÐ inn. Ábyrg kirkja, sem flytur hið lifandi Orð Guðs, „mun ekki hrynja“. Hún er: „Söfnuður Guðs, lifanda Guðs, stólpi og grundvöllur sannleikans“. Ég samfagna ykkur innilega, íslenzku klerkunum, og öðrum kirkjunnar mönnum, sem fáið tækifæri til að fara á Lútherska alþjóða kirkjuþingið í Hannover í Þýzkalandi á sumri kom- anda, dvelja í Torgkirkjunni heila viku, hlusta þar á fótatak og hjartslátt liðinna kynslóða, og semja framtíðarlofsöng hinn- ar sigrandi kirkju Jesú Krists. Og ég legg fyrir mig þessa spurningu: Hvernig stendur á því, að þing þetta kemur ekki saman í sólarmusteri Júpíters í Baalbek?“ „Ljósastikunum burtu kippt“, svarar þú, og af þeim sökum þessi þjóðlönd áhættusömustu og óráðnustu örlög veraldar- sögu dagsins. Ég er að hugsa um ræðutexta morgundagsins, 26. sd. e. tr. Orð Jesú hjá Matt. 11, 25—30: „Ég vegsama þig, faðir .. . Skyldi Markús Aurelius — sem um skeið var samtíma Tertul- líanusi, þessi vitri og ágæti keisari, sem sagði grátandi gæðing- um sínum á banadægri, að þeir skyldu ekki gráta yfir sér, heldur yfir eymd og spillingu þjóðarinnar, ekki hafa kynnt sér guðspjöllin? Tertullían kvartar undan því, að almennt lesi „spekingar og hyggindamenn" aldarinnar ekki rit kristinna manna, en gefi þeim sjálfum því meiri gætur. En um hvað var svo Markús Aurelius að hugsa á bana- sænginni? Hafði hann, þrátt fyrir allt, lesið þessi orð Jesú: „Jerúsalemsdætur, grátið ekki yfir mér, en grátið yfir sjálfum yður og börnum yðar. Er það líklegt, a, keisarinn hafi verið að hugsa um eitthvað svipað og skáldjöfurinn Einar Benedikts- son, þegar hann er að lýsa þessu fólki, þar sem „engils svipur er á hvarmi, undirheima bros á vör“: „Beinleit fljóð og brúnaþungir halir bekkjast síðar fast við hóglífs kvalir. Línur andlits lúðar eru og sjúkar, limir mýkri en dýnan, sem þá hvílir. Styrk og fríðleik hniginn hjúpa dúkar. Hjartað ástalaust í munuð veilist. Uppgert fjör í eitur nautna seilist, ofláts mælgi hrömun þankans skýlir.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.