Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1951, Blaðsíða 41

Kirkjuritið - 01.12.1951, Blaðsíða 41
RÖDD ÚR FLOKKI LEIKMANNA 291 ir eru árlega í hverju prófastsdæmi, vita oft fáir, aðrir en prestarnir og þar til kjörnir fulltrúar. Þessir fundir eru oft fámennir, daufir og áhrifalitlir, líkt og safnaðar- fundir. 1 sambandi við hvern héraðsfund þyrfti að vera áhrifamikil kristileg samkoma, sem undirbúin væri þann- ig, að hún drægi fólkið óspart að sér. Þar mættu kirkju- kórar og létu til sín heyra. Þar væru fluttar stuttar, skarp- ar framsöguræður, og öllum samkomugestum frjáls þátt- taka í umræðum. Yrði þessi nýbreytni tekin upp, myndi hún vera spor í áttina að örva æðasláttinn, glæða trú- arlífið. Nú í seinni tíð sýnast sumstaðar vera merki hnignunar yfir kirkju og kristindómsmálum. Fjöldi fólks dýrkar nú danssamkomur úr hófi fram. Þessar samkomur eru oft á laugardagskvöldum og standa fram eftir nóttu. Þarna mætir oft múgur og margmenni. Vitanlegt er, að þama hefir oft átt sér stað ölvun, er hefir leitt af sér skömm og skaða. Næsta dag kemur þessu fólki ekki til hugar að fara til kirkju sinnar, þótt það eigi þar kost á messu. Trúmálasamkomur utan kirkju eru viðast fátíð fyrir- brigði. Ekkert get ég séð því til fyrirstöðu, að tekin yrði upp sú regla að verja einum degi árlega til almennrar kristi- legrar samkomu fyrir hvert einstakt hérað eða prófasts- dæmi, auk héraðsfundar samkomunnar, sem áður er getið. Ef vel tækist með þessar samkomur, en þær þyrfti að gera svo hátíðlegar og tilkomumiklar sem hægt væri, mundi fólkið, sem þeirra nyti, finna, að þar væri betra að vera en í danssölunum, og því ekki ólíklegt, að slíkar sam- komur gætu með tímanum átt þátt í fjölgun kirkjugesta. Ef lægi fyrir þessari uppástungu að verða meira en orð- in tóm, þá teldi eg viðeigandi, að samkomudagurinn bæri nafnið Kirkjudagur, t. d. Kirkjudagur Skagfirðinga, Kirkju- dagur Húnvetninga o. s. frv. Samstarf presta innan héraða eða prófastsdæma mun víða vera of lítið, nema ef vera skyldi á héraðsfundum,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.