Kirkjuritið - 01.04.1953, Side 9
NÆR KROSSINUM
75
trúarkenningum kristindómsins um margar aldir. Með
honum friðþægði hann fyrir synduga menn. Og þó að skipt-
ar hafi verið skoðanir á hinum síðari tímum um það,
hvernig skilja bæri þetta mikilvæga trúaratriði fyrri tíma,
þá er það alveg víst, að ótal mörgum veitti það svölun,
ótal mörgum var það dásemdarkraftur, sem gagntók hjörtu
þeirra og veitti þeim frið við sjálfa sig og frið við Guð.
Ótal mörgum jók það lotninguna fyrir Kristi, elskuna til
hans og tilbeiðsluþrána í brjóstum þeirra. Leyndardómur
krossins verður aldrei upplýstur til fulls fyrir skilningi
mannanna hér á jörð. Hann hefir alltaf verið ofan við
skýringar mannanna og mun verða það áfram. En hann
hefir alltaf verið jafnmikill kraftur í lífi manna fyrir því,
°g þeim mun meiri og öflugri, sem menn hafa komizt nær
krossinum. Það er einn af vanköntum nútímans, að vilja
skáka öllum leyndardómum út af sviði þess raunverulega,
eða með öðrum orðum: vilja ekki viðurkenna neitt, sem
heir ekki fá skilið til fullnustu. Þekking manna á þessum
tímum er að vísu orðin mikil, en alveg víst er það, að ein-
Ur>gis er það örlítið brot af öllu því, sem þó enn er óþekkt
1 tilverunni. Og í krafti leyndardóma trúarinnar hafa
stærstu og mestu afrekin verið unnin á liðnum tímum.
Það er rétt og sjálfsagt að nota skynsemina og þau skilyrði
th aukinnar þekkingar, sem fyrir hendi eru, en jafn rétt
°g sjálfsagt er líka hitt, að viðurkenna, hve skynsemi okkar
er takmörkuð og skrefastutt. Sá maður, sem gengur fram
hjá krossinum og leyndardómi hans án þess að nema staðar
°g hugleiða gildi hans, er að mínum dómi ólíkt ver farinn
en hinn, sem getur í einlægni tekið undir þessi orð skálds-
ins:
Hærri þótt sé huga mínum,
held ég mig að krossi þínum.
Styð þú mig að stríða og líða,
styrk þú mig í dauðans kvíða.
Leið þú mig í lífsins borg.