Kirkjuritið - 01.04.1953, Qupperneq 76
142
KIRKJURITIÐ
Að frumkvæði héraðspró-
fastsins, sr. Jóns Þorvarðsson-
ar, buðum við séra Friðrik
Friðrikssyni dr. theol. heim
hingað í prófastsdæmið vorið
1950. Hann prédikaði í 6 kirkj-
um af 8; höfðum við öll, sem
hittum hann og heyrðum, af
því blessun og uppbyggingu-
Þessi heimsókn tókst ágæt-
lega. Hér var líka á ferðinni
afburðamaður, kann einhver
að segja. Rétt er það að vísu.
En ekki er allt undir því kom-
ið, hver maðurinn er, sem við
bjóðum heim, heldur líka okk-
ur sjálfum, starfi okkar og
undirbúningi. Með Guðs hjálp
og góðum vilja getur hver, sem
fyrir valinu verður, orðið starfi
okkar til gagns og blessunar.
Bræður góðir! Takið þetta til athugunar á héraðsfundum nu
í ár. —
*
Voltaire spáði því, að innan eitt hundrað ára mundi Biblían
verða úrelt bók og af engum lesin. Nú er Biblíufélag til húsa
þar, sem Voltaire bjó, og á hverri sekúndu sem líður kemur
eitt eintak af Biblíunni úr pressunni.
*
Fimm aðalástæður að hrörnun og falli Rómaveldis, segir
Gibbon, að hafi verið þessar:
1) Fjölgun hjónaskilnaða. Með þeim var grafið undan virð-
ingu og helgi heimilisins — grundvöllurinn sjálfur eyði'
lagður.
2) Síhækkandi skattar, sem fóru í brauð og leiki handa al-
múganum.