Kirkjuritið - 01.04.1953, Blaðsíða 28
94
KIRKJURITIÐ
Því aðeins væru það Hálssveitingar og Reykdælingar, sem
hefðu hennar mest not, og úr þeirra vasa yrði féð að koma.
Þegar séra Guðmundur Helgason kom að Reykholti, var
þetta brúarmál búið að vera nokkur ár á döfinni og sýndist
að mestu kulnað út. Samt var Þorsteinn á Húsafelli ekki
af baki dottinn, og Þorsteinn á Hofsstöðum fylgdi honum
að málum. En séra Guðmundur blés nýju lífi í þetta mál.
Hann hafði frétt af því, að Einar Guðmundsson bóndi á
Hraunum í Fljótum hefði lagt brú yfir árgljúfur í Norður-
landi og orðið frægur fyrir. Hugsanlegt þótti að leita til
Einars í þessu brúarmáli. Varð það úr, að síra Guðmundur
skrifaði honum lýsingu af öllum aðstæðum þessu máli
viðvíkjandi. Skrifaði Einar aftur og leit hann svo á, að
þetta væri framkvæmanlegt. Bauð hann þessu máli, fyrir
orð séra Guðmundar, liðsinni, bæði með kostnaðaráætlun
og smíði, þegar allt væri undirbúið. Urðu þau endalok í
þessu máli, að vorið 1891 var allt efni flutt að brúarstæð-
inu. Það sama sumar, á slætti, tók Einar á Hraunum sig
upp frá búi sínu og reið fyrst í Reykholt, þar sem honum
var vel fagnað af séra Guðmundi, sem þá var orðinn bæði
prófastur og höfðingi héraðsins. Þorsteinn Árnason bóndi
á Hofsstöðum og Árni smiður sonur hans voru þá til reiðu
að ganga í lið með Einari við brúarsmíðið, sem gekk bæði
fljótt og vel og slysalaust að öllu. Þetta var fyrsta brúin,
sem byggð var í Borgarfirði. Þótti það afrek á þeim árum,
þegar á það var litið, hve aðstaðan var erfið með aðflutn-
inga og önnur vinnubrögð. Þegar smíði brúarinnar var
lokið, var forvígismönnum þessa máls klappað lof í lófa
fyrir að hafa hrundið í framkvæmd slíku happaverki, en
til þess var sú eina leið, sem síra Guðmundur valdi, hvað
smíðið snerti. Átti hann því miklar þakkir fyrir liðveizlu
í því máli. Barnafoss-brúin er nú fimmtíu og sjö ára gömul
og elzta brú á Suðurlandi. Er hún þegjandi vottur þess,
að hér voru þá menn, sem horfðu fram og brutu ísinn
fyrir eftirkomendur sína.
Allt snerist þessum prófastshjónum í Reykholti til gæfu