Kirkjuritið - 01.04.1953, Blaðsíða 39
Séra Böðvar Bjarnason frá Hrafnseyri.
18. april 1872 — 11. marz 1953.
Séra Böðvar, prófastur á Hrafnseyri, átti erfðir að
sækja til sterkra stofna. Faðir hans var óðalsbóndinn
landskunni, Bjarni Þórðarson á Reykhólum, en móðir Þór-
ey Pálsdóttir, kona Bjarna, ekki
siður kunn. Um ættir séra Böð-
vars er margt skrifað, og skal
ekkert af því rakið hér. Faðir
hans var einhver mesti atorku-
^aður í bænastétt sinnar kyn-
slóðar og lagði gjörva hönd á
flest, er hann snerti við (silfur-
smíði, söðlasmíði o. m. fl.), en
húið á Reykhólum eitt hið mesta
hór á landi í þann tíð. Systkina-
hópurinn var stór og heimilið
fjölmennt. Samvistirnar við hinn
úásamlega lífheim í fjöllum og
eyjum, fagur fjallahringurinn,
margs konar leikir og fjölhæf störf hafa mótað hinn unga
mann frá blautu barnsbeini. Hann óx úr grasi þar, sem
hátt var til lofts og vítt til veggja.
Séra Böðvar var settur til mennta. Hann útskrifaðist
Sem stúdent frá Latínuskólanum í Reykjavík hinn 30. júní
1897 og sem kandídat í guðfræði frá Prestaskólanum rétt-
Um þremur árum síðar, hinn 16. júní 1900. Það mun hafa
le§ið allfjarri lund séra Böðvars að „kurera“, enda var
hann ekki í tölu þeirra, sem tóku háar einkunnir í skóla.
Séra BöSvar Biarnason.