Kirkjuritið - 01.04.1953, Blaðsíða 80
146
KIRKJURITIÐ
kunnar, en aðrar ókunnar, apokrýfar bækur og frásagnir um
líf og háttu Essena, sem voru sértrúarflokkur á Gyðingalandi
frá 2. öld f. Kr. til 2. aldar e. Kr. Var flokkur þessi strangur
og siðavandur meinlætaflokkur og miskunnsamur við þá, er
áttu bágt.
Gamla testamentisritin eru sem hér segir: Mósebækurnar 5,
Jósúabók, Rutar, Samúels, Konunganna, Sálmarnir, Prédikar-
inn, Ljóðaljóðin, Jesaja, Jeremía, Harmljóðin, Esekíel, Daníel,
Smærri spámannaritin og Tobítsbók.
Handritin eru skrifuð á sefpappír og bókfell. Þau eru á he-
bresku, aramisku og grísku og sum með stafagerð, sem er
náskyld fornletri Föníka.
Tobítsbók kemur hér í fyrsta sinn fram í dagsljósið á he-
bresku og aramisku, en áður vissu menn aðeins um grískar
þýðingar.
G. L. Harding, sem jafnframt er þjóðminjavörður á Gyðinga-
landi, hefir tekið svo djúpt í árinni, að hann telur Biblíufræð-
inga um heim allan munu hafa ærinn starfa við það um daga
næstu kynslóðar að minnsta kosti, að brjóta handrit þessi til
mergjar.
Handritin fundust í helli einum nálægt fornum rústum,
Khirbet Qumran. Þar áttu Essenar byggð fyrir 1900 árum og
hafa þeir komið handritunum í hellinn til varðveizlu. Er sá
hellir ekki allfjarri þeim, er Dauðahafshandritin svo nefndu
fundust í 1947.
Erfitt mun verða að lesa sum þessara handrita, en vel má
það takast. Mun þá varpað að ýmsu nýju ljósi yfir trúarsögu
Gyðinga og strauma í trúarlífi þeirra á öldunum um og eftir
fæðingu Jesú.
Innlendar fréttir.
Kosning í kirkjuráð.
Um síðustu áramót fór fram kosning tveggja manna í Kirkju-
ráð til næstu fimm ára, og kusu prestar og guðfræðikennarar.
Atkvæði greiddu 85, og voru þau talin 18. febrúar. Þeir voru
endurkjörnir: Ásmundur Guðmundsson prófessor með 57 atkv.
og séra Þorgrímur Sigurðsson með 37 atkv. Biskup er forseti