Kirkjuritið - 01.09.1973, Page 4
Efni
Bls.
— 195 í gáttum
— 197 ,,Orð frá Drottni var sjaldgœft á þeim dögum."
—• 200 Prestastefnan 1973. Dr. theol Sigurbjörn Einarsson, biskup.
— 218 Dœmisagan af týnda syninum, síðari hluti. Dr. Helmut Thielicke.
— 227 Lögmálstrú, mystik, trúnaðartraust. Natan Söderblom, erkibiskup.
— 238 í7Enginn skyldi nálgast Gyðinga, nema hann unni þeim." L. G. Terray.
— 243 Orðabelgur.
— 246 Frá tíðindum.
— 252 Síra Harald S. Sigmar kveður biskup og prestastefnu.
— 263 Bókafregnir. G. Ól. Ól.
— 267 Guðfrœðiþáttur: Um góðu verkin: M. Lúther.
— 277 Um helgisiði, Sr. Sigurður Pálsson, vígslubiskup.
Þann 12. október s.l. varð dr. Páll ísólfsson áttrceð-
ur. Islenzkir prestar bera mikla virðing fyrir þeim
manni. Hann er hvorki aðkomumaður né leiguliði
í húsi Guðs, heldur heimamaður og raunar prestur
í þeim lútherska skilningi. Við þetta hefur hann
œtíð kannast af fullrí einurð og nú síðast á áttrceð-
isafmœli sínu, að organistastarfið í kirkjunni var
honum kcerzt. Hitt þarf varla fram að telja, hver
frumherji hann var í íslenzku tónlistarlífi, organ-
leikarinn, tónskáldið, stjórnandinn, skólastjórinn.
Þá sögu þekkja allir. En mestur og hugstceðastur
verður hann kirkjufólki, samherjum og vinum á bekk
sínum í kirkjunni. Hafðu heiður og þökk, Páll ls_
ólfsson. Hefti þessu fylgja blessunarbœnir fyrir þer
og þínum.
194