Kirkjuritið - 01.09.1973, Page 66
af höndum til ríkisins. Bantu-frœðslu-
lögin kvóðu á um þetta. Hér var því
um það að rœða að berjast gegn
þessu og komast af án ríkisstyrkja, sem
skólarnir höfðu notið og höfðu ekki
komizt af án. Biskuparnir í erkibiskups-
dœminu samþykktu, að láta skólana
af hendi, allir nema Ambrose Reeves.
Hann stóð einn gegn þessu og hafði
það grundvallarsjónarmið, að Bantu-
frœðsulögin miðuðu að því, að gjöra
þeldökka menn minniháttar um mennt-
un um alla framtíð. Þetta vœri ósam-
rýmanlegt grundvallarsjónarmiðum
menntunarinnar. Þessi lög stuðluðu að
því að veita öðrum forréttindi og vœri
það siðferðilega óverjandi.
Skólarnir voru afhentir ríkinu, 47 að
tölu, árið 1955, en nokkrir kristnir fjöl-
skylduskólar voru opnaðir í staðinn
um stuttan tíma. Þeir gátu ekki starfað
vegna fjárskorts.
Fisher, erkibiskup í Kantaraborg
varð œvareiður við Reeves biskup
vegna afstöðu hans og sömuleiðis
margir hinna ensku biskupa. Töldu
þeir hann fara villur vega. En á hinn
bóginn óx honum fylgi manna, er tóku
að styðja hann vegna afstöðu hans
um grundvallarsjónarmið. Líklega
hefði hann sigrað stjórnina í þessu
máli hefði kirkjan staðið einhuga með
honum.
Annað dœmi er um það, þegar
fjöldahandtökur hófust í desember
1956 og mönnum var stefnt fyrir hinn
alrœmda landráðadómstól, þá má
segja, að stjórnin hafi beðið ósigur í
þeim átökum, vegna baráttu Reeves
biskups. Sjóður, sem stofnaður var og
nefndist „Biskupssjóðurinn" til þess
œtlaður að styðja fjölskyldur sakborn-
inga og til að kosta málsvörn þeirra,
var að vísu ekki hugmynd hans, en
Reeves biskup gjörði hann að því, sem
hann varð og olli úrslitum. Geysilegur
fjöldi fólks hvaðanœfa úr heiminum,
en þó einkum fólk í Bretlandi sendi
fjárframlög í sjóðinn.
Reeves biskup barðist af alefli a
móti þjóðfélagslegu óréttlœti og marg-
oft fékk hann því til leiðar komið með
persónulegum áhrifum, að dauða-
dómi yfir andstœðingum stjórnarinnat
var breytt í fangelsisdóm.
Svo kom að því að njósnað var um
athafnir hans, símtöl hleruð og póstur
skoðaður. Reeves biskup var frá upp'
hafi veru sinnar í Suður-Afríku til
þœginda stjórninni, síðan varð hann
henni hindrun og síðast hinn hcettU'
legi maður, enda mœltist Dr. VerWa'
erd forsœtisráðherra til þess við hátt-
setta brezka embœttismenn, að bisk'
upinum í Jóhannesarborg yrði fen9’
inn annar starfi utan Suður-Afríku n
þess að gott samband gœti ríkt mi^
Bretlands og Suður-Afríku, „því a^
hann er eini maðurinn, sem sameina
getur hina ýmsu andspyrnuöfl ge9n
stjórninni".
Árið 1960 í marz gerðist voðaat
burður, þegar lögreglan drap
Afríkumenn 1 Sharpeville og scer
186. Ambrose Reeves biskup heimsótt'
spítalann, þar sem hinir sœrðu la9u/
gekk þar á milli rúma og rœddi við Þa
og fékk fregnir af atburðunum. Síða
sá hann til þess, að þeir, er hér attu
um sárt að binda fengu lögfrceðileg
aðstoð fyrir dómstólum og á Þan^
um
ða
hátt fékk umheimurinn að vita
ástandið í landinu og greinarg0
lýsingu á atburðunum. Upp úr ÞeS
256