Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 30

Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 30
um einum hefur Guð gefið hæfileika til að votta elsku Krists á einhvern hátt. Líkaminn er margslunginn og hver hluti hans hefur sínu hlutverki að gegna. En allur veröur likaminn aö vinna saman og markvisst. Þjálfun íþróttamanns er samþjálfun líkamans til meiri átaka og betri árangurs. Hver söfnuður verður að eiga sér þjálfara og höfuð, sem samhæfir kraftana. Þá fyrst er einhvers verulegs árangurs að vænta. Þetta síðast sagða er vissulega mannlega mælt. Vér vitum að það er ekki allur sannleikurinn, því það er einmitt fagnaðarboðskapurinn, að vér megum trúa því og treysta, að Guð snýr illu til góðs og gjörir veika við- leitni vora styrka. En þessi vissa leys- ir oss ekki undan ábyrgð. Þvert á móti kallar hún til ábyrgðar á sama hátt og orðin: „Barnið mitt, syndir þínar eru þér fyrirgefnar," eru einnig fyrirskipun um að fara af stað til að vitna um þessa dásamlegu fyrirgefn- ingu. Hlutverk safnaðarins í æskulýðsstarfi Hlutverk safnaðarins í æskulýðsstarfi kemur fram í kristniboðsskipuninni eða innsetningarorðum heilagrar skírnar: ,,Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og kristnið allar þjóðir, skírið þá til nafns föðurins sonarins og hins heilaga anda og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður.“ í ávarpi því, er prestur fer með við skírn, segir svo: „Góð systkin, þér eruð vottar þess, að þetta barn er nú skírt til nafns föður- ins, sonarins og hins heilaga anda. Nú er þaö heilagt hlutverk yöar, heim- ilis þess, guöfeögina og safnaöar aö kenna þvi aö halda þaö, sem Drottinn hefur boöiö. Styöjiö þaö með kærleika og fyrirbænum til aö lifa i samfélagi viö Krist... “ í rauninni lýkur þessu hlutverki safnaöarins þá fyrst, er rek- um er kastaö og hinn látni er faiinn eilifri miskunn Guös. Því ber að vara alvarlega við einangrun æskulýðs- starfs safnaðarins og nauðsynlegt er, að þetta heildarhlutverk sé stöðugt haft í huga. Einkum ber að vara við þeim misskilningi, að þessu hlutverki safnaðarins Ijúki við fermingu. Kem ég að því síðar. En til að eitthvert vit verði í þessu kristna uppeldi er nauð- synlegt, að unnin sé heildaruppeldis- áætlun kirkjunnar. Á vegum mennta- málanefndar hefur unnið nefnd, er unnið hefur að námsskrá fyrir kristin- fræðikennslu í grunnskóla. Þá hefur einnig starfað nefnd, er hefur ferm- ingu og fermingarundirbúning til end- urskoðunar. Sérstakt skólaprestsem- bætti er til, og á skrifstofu æskulýðs- fulltrúa hefur verið komið upp góðu efni fyrir barnastarf og efni fyrir ungl' ingastarf er í fæðingu. En eins og s/a má af þessari upptalningu er brýn nauösyn, aö öllum þeim, er aö þess- um málum vinna, sé Ijós heildarmynd- in og endarnir komi allir saman á einn staö. Er uppeldisáætlun kirkjunnat liggur fyrir, þá fyrst er unnt aö skipu' leggja, hvernig aö framkvæmd áaetl- unarinnar skuli staöiö i heild sinn'- Mun þá koma í Ijós, að starfssvið safnaðarins er fjölþætt, eins og áður segir. Því er eðlilegt, að ákveðnar greinar vínviðarins fari með viss mál 28

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.