Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 44

Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 44
menna menningu samfélagsins vita betur hvernig fagnaðarerindið kemst til skila en háskólasérfræðingar sem lítil tengsl hafa við kristnilíf safnað- anna. Það má vel vera að ýmislegt í hinu gamla orðasafni trúarinnar hafi misst merkingu sína á okkar tímum. Úr þessu ætlaði Tillich og fleiri að bæta með því að innleiða ný orð og hugtök yfir þann veruleika sem býr að baki trúarhugmyndanna. En hér varð ekki erindi sem erfiði. Þrátt fyrir allt er orð- ið Guð eðlilegra og tamara hugsun nútímafólks en ,,tilverugrundvöllur“ svo dæmi sé tekið. Ég efast ekki um einlægni Tillichs og góðan vilja og eflaust var hann og er oft misskilinn. En þó að Tillich tali stuna'um um Guð eins og hann væri persóna á hann það líka til að útvatna svo guðshugmynd- ina, gera guðshugtakið svo óljóst að í þeirri þoku er nánast engar áttir að finna. Það er því ekki með öllu að ástæðulausu að hann hefur stundum verið sakaður bæði um algyðistrú og guðleysi. Venjulegt safnaðarfólk virð- ist ekki kunna að meta svona hjálp sem er verri en engin. Prestaskóla- kennari einn í Ameríku sagði frá því að þegar hann hefði verið búinn að flytja röð fyrirlestra um Tillich og guð- fræði hans hefðu nemendurnir verið búnir að fá slíkt ofnæmi fyrir orðinu ,,tilverugrundvöllur“ að þeir þoldu varla að heyra það nefnt. Það hefur líka sýnt sig að það er ekki alltaf ýkja löng bæjarleið frá tilveruguðfræði yf- ir í guðleysi. Einn af lærisveinum Bultmanns benti m. a. á þá hættu. Tilveruguðfræðin á það sameiginlegt með nýrétttrúnaðinum að vera svart- sýn á eðli og ástand mannsins. Tillich leggur t. d. áherslu á að maðurinn hljóti alltaf að vera algjör þiggjandi og geti ekki haft neitt frumkvæði um sína eigin lækningu eða sáluhjálp. Þetta atriði kemur einnig skýrt fram hjá séra Heimi er hann segir í skrifum sínum að trúin sé Guös verk og hans eins. ,,Guð getur valið mig, ekki ég hann.“ Þrátt fyrir þetta hvetur Tillich manninn til að „meðtaka það að vera meðtekinn.“ Og séra Heimir skorar á einstaklinginn að velja, velja strax, koma nú, nota tækifærið. En hvernig í ósköpunum getur maðurinn sýnt slíka röggsemi af sér ef hann heíur enga getu til frum- kvæðis, ef Guð getur valið hann en hann alls ekki valið Guð? Hér spyr sá sem ekki veit. Frjálslyndu guðfræðingarnir voru stundum barnalega bjartsýnir á mann- inn og getu hans. En er ekki þegar allt kemur til alls álíka óraunsætt að halda því fram að maðurinn sé einhver vilja- laus og getulaus drusla og krefjast þess síðan að þessi vesalingur eigi að axla þá ábyrgð að velja? Fólk með „common sense“ verður ekki dolfallið af hrifningu yfir svona fílósóferingu- Tilveruguðfræðingar hafa oft verið ásakaðir um að mála með sterkum litum, nota stór orð, krassandi lík' ingar. Slíkt orðasvall er réttlætt með því að ekkert minna en „shock treat- ment“ dugi til að hrista menn upp ur sofandi hálfkristni og sljóleika venju- bundinnar hugsunar. Sem gamaH sveitamaður veit ég að hrossabrestir geta verið þarfaþing undir vissum kringumstæðum. En jafnvel hrossa- brestum er hægt að venjast svo að hætt sé að taka þá alvarlega, einkum

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.