Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 48

Kirkjuritið - 01.04.1976, Page 48
síðastnefndu greinar alkirkjuhreyfing- arinnar runnu saman árið 1948 og ^tofnuðu Alkirkjuráðið, og hélt það að- alfund sinn sama ár í Amsterdam. AK hélt aðalfund í Nýju-Dehli árið 1961. Þá var IMC einnig sameinað samtök- unum. í upphafi voru þessar þrjár alkirkju- hreyfingar allar sjálfstæðar og höfðu hver um sig sett sér skýra stefnu í starfi. En þegar fram liðu stundir, sameinuðust þær í AK, og bar hvort tveggja til, að sameiningarstefna í kirkjumálum var mjög ríkjandi innan allra greinanna þriggja, enda voru leiðtogarnir hinir sömu, og loks kom til skoðun sú á kirkjunni, sem ruddi sér verulega til rúms á fjórða áratugn- um íyrir heimsstyrjöldina síðari. Þessi ritgerð fjallar um Alkirkjuráð- ið og ungu kirkjurnar. Ungu kirkjurn- ar eiga sér eldri sögu en AK. Því skal nú vikið að tilteknum atriðum í hinu sögulega baksviði ungu kirknanna, áð- ur en alkirkjuhreyfingunni óx fiskur um hrygg. I. Sögulegt baksvið „Ungar kirkjur" hafa verið við lýði allt frá því er nútímakristniboð hófst, þó að alkirkjuhreyfingin hafi byrjað að nota hugtakið. Hugmyndin um ,,plantatio ecclesia“ (gróðursetning kirkjunnar) er gömul og kom fram í lögum flestra félaga og samtaka, sem höfðu kristniboð á stefnuskrá sinni. Ziegenbalg fór kristniboði til Suður-lndlands árið 1706 á vegum Halle-kristniboðsins danska. Jafnvel honum var Ijóst, að markmið kristniboðsins var að stofna söfnuði, sem yrðu síðar sjálfstæðar kirkjur. Eins var háttað um Zinzendorf, stofnanda Bræðrasafnaðarins. Sú hugmynd að grundvalla sjálf- stæðar kirkjur á kristniboðsakrinum var því til frá upphafi, en langur tími leið, áður en hún varð að veruleika. Um miðja síðustu öld tóku menn fyrir alvöru að fjalla um þetta atriði, er þeir ræddu um guðfræði og starfs- skipulag kristniboðsins. Líklega hafa skoðanir Henry Venns vegið þyngst á metunum. Hann stjórnaði stærsta brezka kristinboðsfélaginu, Church Missionary Society, Kirkjutrúboðs- félaginu. Venn leit svo á, að kristniboð- ið ætti að keppa að því marki, að kirkj- urnar stæðu á eigin fótum fjárhags- lega, stjórnuðu sér sjálfar og önnuðust sjálfar útbreiðslu fagnaðarerindisins (,,self-support,“ ,,self-government“ og ,,self-extension“ eða „self-propagat- ion“). Og þetta átti að gerast í þessari röð. Fyrst skyldi kirkjan efld fjárhags- lega, svo að hún sæi um sig sjálf- Þa fyrst, er því marki væri náð, ætti hún að fá fulla sjálfsstjórn. Þá yrði hún einnig fær um að útbreiða sig sjálf, Þ- e. halda áfram að breiða út fagnaðar- erindið. Kristniboðið yrði óþarft. Tak' mark kristniboðsins væri „evþanasi kristniboðsins. Þegar þessu marki vseri náð, mætti snúa sér að öðrum ökrum. „the regions beyond“. Svo fór, að þessar skoðanir urðu að mestu ráðandi í kristniboði vorra tíma. En öðrum hugmyndum var líka hald- ið á loft. í því sambandi má nefna Rufus Anderson eða Roland Allen. Þeir töldu að vinna bæri að því eftir msetti. 46

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.