Kirkjuritið - 01.06.1978, Blaðsíða 53
Frá tíðindum heima
Rætt um Kirkjurit
Á aðalfundi Prestafélags íslands nú í
sumar komu fram tværóskir varðandi
efni Kirkjurits. Annars vegar var þess
^sskt, að ítarlegur fréttaannáll kæmi í
ntinu að staðaldri, hins vegar taldi
e'nn fundarmanna æskilegt og lík-
leQa sjálfsagt, að öll sýnóduserindi
yrðu geymd í ritinu.
Ekki þarf mjög glögga menn til að
sjá, hversu óskir þessar rekast á og
hversu torvelt yrði að verða við þeim,
e nieðan ritið er útegfið og að því
staðið með þeim hætti, sem tíðkazt
hefur. Víst skortir mjög á að frétta-
rn'ðlar sinni kristni og kirkjulífi hér á
•andi, svo sem eðlilegt mætti teljast
með kristinni þjóð. Leti og ódugnaði
^irkjumanna mun það að kenna m. a.
En hitt er Ijóst, að tímarit getur aldrei
°rðið fréttablað. Fréttaannáll yrði að
sönnu dýrmæt heimild, ef vandaður
Vði, en hann hefði einkum gildi fyrir
fró&leiksmenn og grúskara í framtíð
°9 yrði lítt lesinn af þeim, sem nú fá
ntið nýtt í hendur. Jafnframt skal svo
ner|t á, að sýnódusskýrsla biskups,
Sem jafnan birtist í Kirkjuriti, er öðr-
em þræði annáll og hin gleggsta
neimild.
Um sýnóduserindin er að nokkru
hið sama að segja. Æskilegt væri að
sjálfsögðu, að þau geymdust ein-
hvers staðar sem heimild, líkt og al-
þingisræður. En því ferfjarri, að þau
geti öll talizt hentugt lestrarefni. Ættu
þau að birtast í tímariti, er hætt við að
flestir lesendur sneyddu hjá þeim og
teldu prentun þeirra óþarfan kostn-
aðarauka. Þar með er ekki sagt að
erindi þessi séu öll ómerk og lítt á-
hugaverð. Fjarri því. En ritstjórn fá-
tæks tímarits, sem telur sig þó eiga
brýnt erindi við lesendur, hefur ekki
efni á því að gerast alæta. Hið brýna
erindi verður að sitja í fyrirrúmi.
Norræn menning
og íslenzk heimóttarbrók
Á síðustu misserum hafa þau tíðindi
gerzt mörg, sem vissulega hefði yerið
við hæfi að helga nokkurt rými í
Kirkjuriti, en hafa þó farið hjá garði
þess að mestu. Góðviljaðir, sem lesa
þessar línur og bera hag ritsins fyrir
brjósti, munu fara nærri um, að þar er
ekki ávallt vanmati tíðindanna um að
kenna. Stórtíðindi máttu það t. d. telj-
ast, er Norrænir kristnir menningar-
dagar voru haldnir á íslandi í ágúst í
131