Kirkjuritið - 01.06.1978, Qupperneq 54
fyrra. Þá voru það og tíðindi, að stjórn
Samnorrænu kirkjustofnunarinnar
(Nordiska Ekumeniska Institutet)
kom saman hér til fundar um sömu
mundir. Allt það sem fram fór á þess-
um menningardögum, var áhugavert
og sumt án efa mjög svo merkilegt.
Nú er svo langt um liðið, að varla get-
ur heitið tímbært að fjölyrða um
þennan viðburð. En því er hans getið
nú, að þá varð Ijóst það, sem síðan
blasirenn betur við augum, að kirkju-
fólk á landi hér er meira en lítið tóm-
látt oft, þegar hina merkustu erlenda
gesti ber að garði. Prestar kveina t. d.
gjarna yfir því í sinn hóp, að þeir eigi
fárra kosta völ í bókum og námi, en
hvar eru þeir, þegar þeim gefst kostur
á að blanda geði við erlenda lær-
dómsmenn heima á Fróni? Þeirsjást
varla. Og svo er um fleiri. Hér virðist
einhver andleg heimóttarbrók eða
þjóðmetnaðarskyrta, sem vér ætlum
seintað vaxauppúr.
Kirkjukórasamband Árnesprófasts-
dæmis
Þá var afmælissöngmót Kirkjukóra-
sambands Árnesprófastsdæmis ekki
smár viðburður. Það var haldið í til-
efni 30 ára afmælis og stóðu að því 10
kórar af fjórtán, sem eru í samband-
inu. Sungu kórarnir í Skálholtskirkju
26. nóvember í fyrra, en í Selfoss-
kirkju 4. desember. Of langt er um
liðið til þess, að unnt sé að segja frá
frammistöðu kóranna, en fullyrða
má, að kirkjusöngur í prófastsdæm-
inu sé í framför. Við þá framfarasögu
koma allir þeir, sem í kórunum starfa,
en kórstjórar valda að sjálfsögðu
mestu.
Einar Sigurðsson, kórstjóri og org-
anisti Hraungerðiskirkju segir m. a.
svo í stuttu ágripi 30 ára sögu Kirkju-
kórasambands Árnesprófastsdæmis:
,,Á þessu ári (1977) varð Kirkju-
kórasambandi Árnesprófastsdæmis,
KSÁ, 30 ára. Stofnfundur var haldinn
29. janúar 1947, að Fagurgerði á Sel-
fossi, með þátttöku 7 kirkjukóra í Ár-
nesprófastsdæmi.
Aðalhvatamaður að stofnun sam-
bandsins var Kjartan Jóhannesson,
organleikari. Fyrsta stjórn sam-
bandsins var þannig skipuð: Anna
Eiríksdóttir, Selfossi, formaður, Ing-
ólfur Þorsteinsson, Merkilandi, ritari,
Ingimundur Guðjónsson, Selfossi,
gjaldkeri.
Fyrsta framkvæmd, sem samband-
ið réðist í, varað efnatil söngmóts, og
var það haldið þá strax um haustið,
eða 22. nóvember 1947, í Selfossbíói.
Vorið eftir gekkst KSÁ fyrir því að
halda námskeið fyrir organista í próf-
astsdæminu. Námskeiði þessu
stjórnaði Róbert A. Ottósson. Það var
til húsa heim hjá formanni, frú Önnu
Eiríksdóttur, að Fagurgerði.“
Ennfremur segir þar:
,,Á 30 ára ferli KSÁ hafa allmargir
lagt hönd að verki um stjórn þess og
viðgang. Mestan þátt í mótun og vexti
sambandsins hefur fyrsti formaður
þess átt, sem jafnframt gegndi Þvl
starfi lengst. En formenn hafa verið
þessir: Anna Eiríksdóttir, Guðmund'
ur Gilsson, Einar Sigurðsson, og nu-
verandi formaður er Ragnheiður
132